Elínu Ingu Bragadóttur finnst óeðlilegt og ósanngjarnt að helmingur þjóðarinnar sé alinn upp í ótta
„Síðustu daga hef ég haft króníska gæsahúð af óhug yfir örlögum Birnu Brjánsdóttur, líkt og þjóðin öll. Hef haft stóran stein í hjartanu af sorg og verið vansvefta af vangaveltum um óréttlæti tilverunnar.“ Á þessum orðum hefst pistill eftir Elínu Ingu Bragadóttur í tengslum við upplifun sína af harmleiknum er tengist hvarfi Birnu.
Hún kveðst, líkt og svo margir, hugsa mikið til fjölskyldu og vina Birnu og það að senda hlýjar samúðarhugsanir og styrkt til þeirra virðist svo aumt miðað við það sem þau eru að ganga í gegnum.
Þá segir Elín, sem er 26 ára Akureyringur, að Birna hafi upplifað martröð hverrar konu og foreldrar hennar martröð hvers foreldris.
„Á milli þess sem ég græt af sorg yfir örlögum Birnu, þá græt ég af reiðiblandinni sorg yfir því að einhverjir hafi vogað sér að stíga fram og spyrja hvað Birna hafi verið að þvælast ein um nótt. Ekki aðeins vegna algjörs skorts á samkennd heldur einnig vegna þess að það varpar hluta ábyrgðarinnar yfir á brotaþola ódæðisverknaðarins. Við sjáum sem betur fer flest að það er fullkomlega út í hött. Við konur eigum að geta treyst því að geta gengið um borgina okkar þvera og endilanga, drukknar eða ódrukknar, og komist heilar heim.“
Elín bendir á að í kjölfar atburða síðustu daga hafi skapast umræða um að konur verði að fara varlega og passa hver uppá aðra.
„Fullkomlega skiljanlegar áhyggjur samlanda í sorg. Ég finn mig hins vegar knúna til að velta upp annarri hlið á þessari umræðu, þrátt fyrir að tímasetningin sé slæm og umræðan viðkvæm.“
Elín segist margoft hafa orðið fyrir áreitni um ævina og hafa gert ótal ráðstafanir til að fyrirbyggja að verða fyrir ofbeldi.
„Ég hef passað drykkinn minn á skemmtistöðum, passað mig að ganga ekki ein yfir stór mannlaus svæði á nóttunni og þegar ég var yngri var ég vanalega búin að stimpla inn símanúmer foreldra minna í símann minn áður en ég labbaði heim á kvöldin með hjartað á milljón. Og ég er ekki ein. Nánast allar konur sem ég þekki hafa gert einhverjar slíkar ráðstafanir.“
Hún bendir á að í íslenskri rannsókn kom í ljós að allir kvenkyns þátttakendur gerðu einhverjar slíkar ráðstafanir þegar þeir voru einir á ferð á nóttunni og eins sá karlkyns þátttakandi sem orðið hafði fyrir ofbeldi. Aðrir ekki.
Þá kveðst Elín vera hætt að segja „farðu varlega“ við yngri systur sína þegar hún fer út að skemmta sér. Elín telur það heilbrigða skynsemi. Þess í stað hefur hún vanið sig á að segja „skemmtu þér vel,“ og láta þar við sitja þó svo að hún sé með áhyggjur.
„Ástæðan er sú að mér virðist sem það að segja konum í sífellu að fara varlega viðhaldi sama gamla, gallaða kerfinu þar sem ábyrgð á mögulegu ofbeldi er velt yfir á þann sem enga ábyrgð ber. Þá finnst mér ljóst að slíkt ýti einnig undir sjálfsásökun þolenda, sem næg er fyrir. Loks finnst mér óeðlilegt og ósanngjarnt að helmingur þjóðarinnar sé alinn upp í ótta.“
Elín rifjar upp í pistlinum stundina þegar hún heyrði fyrst af „Take Back the Night“ samtökunum sem stofnuð voru á áttunda áratugnum í Bandaríkjunum með það að markmiði að binda enda á kynbundið ofbeldi. Þegar hún lærði hvað þau standa fyrir upplifði hún ógnarkraft hvað hana langaði að eiga nóttina líka, til jafns við karlmenn.
„Ég áttaði mig í fyrsta sinn raunverulega á hve mikil ósanngirni er fólgin í því að ég eigi að beygja mig og bugta af ótta við að verða fyrir ofbeldi. Ég er þess vegna að æfa mig í að láta hjartað hamast aðeins minna þegar ég labba heim á nóttunni.“
Elín segir enn við sjálfa sig, þegar hún gengur ein heim að næturlagi, að ef eitthvað á eftir að henda hana, þá sé ekkert í hennar valdi sem hefði getað komið í veg fyrir það og svo hún heldur sínu striki.
„Þetta óttaleysi er smám saman að lærast og fyrst ég get lært það, þá hljóta fleiri konur að geta það líka. Við eigum ekki að þurfa að lifa í ótta við ofbeldi.“
Þá bendir Elín réttilega á að konur hafa ferðafrelsi, eins og karlar, á öllum tíma sólarhrings, drukknar og ódrukknar.
„Ef við ætlum hins vegar að skerða það með því að fylla þær skömm yfir að vera einar á ferð um nætur og fara þess á leit að þær taki ætíð taxa heim eftir að hafa verið að skemmta sér, þá þarf einfaldlega að setja leigubílastyrk til kvenna á fjárlög.“
Þá segir Elín að lokum:
Mætum öll á laugardaginn #fyrirBirnu, vottum samúð, sýnum samhug og hvert öðru kærleika <3