Bráðabirgðakrufning á líki Birnu var framkvæmd í gærkvöldi
Bráðabirgðaniðurstöður réttarmeinafræðings á Landspítalanum gefa lögreglu vísbendingar um dánarorsök Birnu Brjánsdóttur. Fréttablaðið greinir frá því í dag að bráðabirgðaniðurstöður liggi fyrir en upplýsingar um niðurstöður þeirra fengust ekki.
Mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa banað Birnu verða yfirheyrðir í dag. Þeir heita Möller Olsen og Nikolaj Olsen eins og DV greindi frá í gærkvöldi.
Heimildir DV herma að skilríki Birnu hafi fundist í togaranum Polar Nanoq, en þeir sem fara fyrir rannsókninni hafa ekki viljað staðfesta þær heimildir. Þá hafa þeir sem stýrt hafa rannsókninni ekki viljað gefa það upp hvort lífsýni úr Birnu hafi fundist víðar en í bílnum, svo sem á fatnaði sakborninga.