Sjómannasamband Íslands, Sjómannafélag Íslands og VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna ákváðu síðdegis á mánudag að slíta kjaraviðræðum, sem staðið hafa yfir með hléum undanfarnar vikur. Báðir aðilar saka hinn um að víkja sér undan ábyrgð í málinu.
Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins, lét hafa eftir sér að hvergi yrði vikið frá kröfum sjómanna í málinu. Ekki hefur verið boðað til næsta fundar.