fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

„Þetta snertir okkur öll“

Afbrotafræðingur segir hvarf Birnu einstaklega óhugnanlegt –Tímabært að skoða hvernig er hægt að auka öryggi fólks í miðborginni

Ritstjórn DV
Föstudaginn 20. janúar 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Birna gæti verið systir okkar, dóttir eða frænka.“

„Það slær óhug að manni.“ Þetta segir Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, í tengslum við hvarf Birnu Brjánsdóttur sem sást síðast í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt 14. janúar síðastliðinn. Helgi segir hörð viðbrögð landsmanna í málinu skiljanleg þar sem við búum í svo litlu samfélagi. Þá telur hann ekki ástæðu til að óttast að mál Birnu sé til marks um nýja tíma í afbrotasögu þjóðarinnar

„Það að ung stúlka ein á gangi í sínu daglega lífi í miðborginni hverfi með þessum hætti er eitthvað sem við erum ekki vön í okkar umhverfi sem betur fer. Í framhaldinu birtast myndbandsupptökur sem sýna síðustu andartökin sem við vitum af henni í umhverfi sem við öll þekkjum svo vel. Þær settu málið í sterkara samhengi og enn meiri óhugur fer um okkur öll.“

Sakborningar voru yfirheyrðir aðfaranótt fimmtudags. Hér er lögregla að flytja þá frá Polar Nanoq.
Leiddir frá borði Sakborningar voru yfirheyrðir aðfaranótt fimmtudags. Hér er lögregla að flytja þá frá Polar Nanoq.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Vanalegt að fólk sé ölvað á þessum tíma

Líkt og aðrir landsmenn hefur Helgi skoðað myndbandsupptökurnar sem sýna Birnu ganga upp Laugaveginn, þessa örlagaríku nótt, gaumgæfilega. Honum virðist eins og hún sé á leiðinni heim og ekkert óvenjulegt virðist í raun og veru vera á ferðinni.

„Birna lítur út fyrir að vera reikul í spori en það er ekkert nýtt að fólk sé ölvað úti á lífinu um þetta leyti dags um helgar. Það er bara hluti af menningu unga fólksins að fara út að skemmta sér um helgar,“ segir Helgi og bætir við:

„Síðan er eins og hún gangi bara út úr myndinni og ekki söguna meir. Þegar þessar upplýsingar bárust tók málið nýja stefnu og varð enn dularfyllra fyrir vikið.“

Fólk upplifir sig óöruggt í miðbænum

Helgi telur að myndbandsupptökurnar gefi sterkt til kynna að Birna hafi ekki horfið af sjálfsdáðum. Þá hafi almenning byrjað að gruna að um manndráp hafi verið að ræða eftir að skóparið fannst við birgðastöð Atlantsolíu við Hafnarfjarðarhöfn.

„Í framhaldinu fara alls konar hugsanir á flug í samfélaginu. Hvað hafi komið fyrir stúlkuna og hvar hún sé niðurkomin.“

Helgi bendir á að mælingar sínar síðustu ár, á því hvort almennir borgarar telji sig örugga eina á gangi í miðborginni að kvöld- og næturlagi, hafi sýnt að 70 til 80 prósent kvenna telja sig ekki öruggar við þessar aðstæður og gjalda varhug við því að vera einar á ferli í miðborginni á þessum tíma sólarhrings. Í sömu mælingum kemur fram að þriðjungur karlmanna telur sig ekki öruggan í miðborg Reykjavíkur að kvöld- og næturlagi.

„Að sama skapi er mikill fjöldi fólks sem telur sig öruggan í sínu eigin umhverfi og yfirleitt erum við örugg hvar sem við erum í okkar samfélagi.“

Auka öryggi fólks í almannarýmum

Þá telur Helgi að myndavélar og myndatökur í almannarými hafi í tengslum við rannsóknina á hvarfi Birnu sýnt gildi sitt. Hann telur að á næstunni verði farið í aðgerðir til að meta hvort endurnýja eigi myndavélakerfið í miðborginni og fjölga myndavélum.

„Stundum gagnrýna menn myndavélar í almannarými og telja þær brjóta gegn persónufrelsi og friðhelgi einkalífs. En eins og við sjáum nú þá komu myndavélarnar að góðu gagni. Gögn af þessu tagi geta hjálpað okkur að varpa ljósi á atburði eins og við sjáum í þessu máli.“

Helgi telur ekki ástæðu til að óttast að mál Birnu sé til marks um nýja tíma í afbrotasögu þjóðarinnar. „Ýmis alvarleg ofbeldismál hafa oft komið upp í miðborginni. Til dæmis í kringum síðustu aldamót voru þau býsna mörg. Þó hefur ekki verið mikið af þeim undanfarin ár, sem betur fer. Samt er nauðsynlegt fyrir okkur að huga sífellt að því hvernig hægt sé að auka öryggi fólks í almannarýminu.“

Víða hefur verið leitað að Birnu.
Björgunarsveit að störfum Víða hefur verið leitað að Birnu.

Mynd: DV ehf – Sigtryggur Ari

Eðlileg viðbrögð í litlu samfélagi

Inntur svara við því hvað honum þyki um viðbrögð þjóðarinnar í þessu hörmulega máli segir Helgi það fullkomlega eðlilegt að fólk bregðist svo sterkt við.

„Þetta snertir okkur öll. Birna gæti verið systir okkar, dóttir eða frænka. Ísland er svo lítið samfélag og við finnum til samkenndar með henni og nánustu aðstandendum með enn sterkari hætti heldur en gengur og gerist í löndum þar sem fólk býr í fjölmennari samfélögum.“

Birnu hefur verið saknað frá því aðfaranótt sunnudags.
Birna Brjánsdóttir Birnu hefur verið saknað frá því aðfaranótt sunnudags.

Leyfir sér að vona það besta

Helgi bendir jafnframt á að margir tengi mál af þessu tagi við erlendan veruleika. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að allt sem gerist í útlöndum gerist líka hérna. Kannski ekki í jafnmiklum mæli en við erum með öll þau afbrot hérna sem gerast annars staðar í heiminum líka.“

Að lokum segir Helgi: „Ég vona svo heitt og innilega að málið leysist og við séum ekki að fá annað Guðmundar- og Geirfinnsmál yfir okkur sem hefur legið eins og mara á þjóðinni frá árinu 1974.“

Þá vonast hann til þess að Birna finnist og málið leysist sem allra fyrst. „Á meðan hún er ekki fundin leyfir maður sér að vona það besta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Í gær

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Í gær

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Í gær

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
Fréttir
Í gær

Grunur um manndráp á Akureyri

Grunur um manndráp á Akureyri