fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Grænlendingar eru harmi slegnir

Upplifun þriggja Íslendinga af umfjöllun þar ytra um hvarf Birnu Brjánsdóttur

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 20. janúar 2017 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir grænlenskir sjómenn hafa verið dæmdir í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna í máli Birnu Brjánsdóttur sem hvarf aðfaranótt laugardagsins 14. janúar. Málið hefur fengið mikla fjölmiðlaumfjöllun úti í Grænlandi og segja má að grænlenska þjóðin, líkt og sú íslenska, sé slegin óhug vegna þess. DV heyrði í nokkrum Íslendingum með sterk tengsl við Grænland og hver þeirra upplifun sé af harmleiknum sem haldið hefur íslensku þjóðinni í heljargreipum undanfarna daga.

„Þetta stendur flestum nærri“

„Þetta er í öllum fjölmiðlum hér og ég held að ég geti fullyrt að Grænlendingar séu harmi slegnir. Ég verð þó ekki vör við mikla umfjöllun á samfélagsmiðlum eða í spjalli manna á milli. Grænlendingar eru frekar hljóðir um þetta mál enda er þjóðfélagið afar lítið og allir þekkja eitthvað til. Þetta stendur flestum nærri og liggur þungt á fólki,“ segir Edda Lyberth, sem búið hefur í Qaqortoq á Suður-Grænlandi í þrjá áratugi.

Hún verður þó vör við þær áhyggjur Grænlendinga að mennirnir fái aðstoð túlks á sínu móðurmáli. „Það hafa margir áhyggjur af því að ef yfirheyrslur fara fram á ensku eða dönsku að þá geti misskilningur átt sér stað. Sem dæmi má nefna að ef Grænlendingur er spurður: „Viltu ekki meira kaffi?“ þá svarar hann játandi og á þá við að hann vilji ekki meira kaffi. Íslendingar myndu hins vegar svara spurningunni neitandi,“ segir Edda. Þá segist hún einnig verða vör við ótta um að grænlenskum sjómönnum verði ekki vært á Íslandi í kjölfar málsins. „Það er ógæfufólk í öllum löndum og ég held að Grænlendingar vonist innilega til þess að málið skemmi ekki samskipti þjóðanna sem hafa aukist mikið og verið afar hlýleg,“ segir Edda.

Halda grænlenskum stjórnvöldum upplýstum

„Okkar hlutverk hefur verið að halda stjórnvöldum hér upplýstum um gang mála. Um leið og skipið Polar Nanoq kom til sögunnar í þessari rannsókn þá hafði ræðisskrifstofan samband við utanríkisráðuneytið hér og gerði þeim grein fyrir því hvað væri á seyði. Það hefur verið gott samband okkar á milli. Utanríkisráðherra Grænlands hefur meðal annars hvatt til þess að íslenskum yfirvöldum sé liðsinnt í hvívetna“, segir Pétur Ásgeirsson, aðalræðismaður Íslands í Nuuk, í samtali við DV. Pétur tekur undir það að umfjöllun um málið í Grænlandi hafi verið mikil. „ Það hefur verið afar hlutlaust fjallað um málið og engin gagnrýni komið fram á hvernig staðið er að málum. Það sem skín í gegn er samúð til fjölskyldu stúlkunnar og áhyggjur af því hvað þarna hafi átt sér stað,“ segir Pétur.

Möguleg yfirhylming „ógrænlensk“

„Það þekkjast hræðilegir glæpir í Grænlandi en yfirleitt liggur þá játning gerandans strax fyrir. Yfirleitt er brennivíni kennt um og oft er greint frá því að gerandinn muni ekki eftir atburðunum. Að því gefnu að mennirnir séu sekir þá er mjög sjaldgæft að gerendur í slíkum málum í Grænlandi reyni að hylma yfir slóð sína og neiti sök,“ segir Kristjana G. Motzfeldt í samtali við DV. Kristjana er nýflutt til Íslands eftir að hafa búið í aldarfjórðung í Grænlandi. „Ég á að vera að standa í flutningum en þetta mál hefur legið þungt á mér og ég kem því næst engu í verk,“ segir hún.

Að hennar sögn koma fréttir um næturbrölt sjómannanna og fíkniefnafund á óvart. „Útgerðin sem um ræðir er afar virt fyrirtæki í Grænlandi og þar er fyllerí ekki liðið um borð, ekki frekar en hjá íslenskum útgerðum. Það er ótækt vegna allrar þeirrar tækni og þeim vinnuferlum sem eru um borð,“ segir Kristjana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi