Landhelgisgæslan sendi þyrlu á vettvang nærri Sandfelli í Öræfum síðdegis á mánudag. Þar varð bílvelta. Tveir voru í bílnum en annar þeirra kastaðist út úr honum. Hann er með áverka á höfði og er bæði skorinn og marinn. Ferðafélagi hans, sem ekki kastaðist út, er einnig eitthvað slasaður, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.
Liðsmenn björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum komu fyrstir á vettvang en í framhaldi af því sjúkrabíll frá Kirkjubæjarklaustri og annar frá Höfn. Í kjölfarið var kallað eftir þyrlu.