„Við erum að leita ásamt vinum og ættingjum í Flatahrauni. Það hefur verið nefnt að það gæti verið gott að skoða Heiðmörk,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir í samtali við DV. Ekkert hefur spurst til dóttur hennar, Birnu Brjánsdóttur en síðast er vitað um ferðir hennar aðfaranótt laugardags en hún sást yfirgefa skemmtistaðinn Húrra.
Birnu er fædd árið 1996 og er 170 sentímetrar á hæð og um það bil 70 kíló, með sítt rauðleitt hár. Birna var klædd í svartar gallabuxur, ljósgráa peysu, svartan flísjakka með hettu og svarta Dr. Martin skó. Sigurlaug segir lögreglu ekki hafa mikið að byggja á í augnablikinu.
„Eina vísbendingin sem lögreglan hefur í augnablikinu er að eftir að símagögn hafa verið skoðuð þá var síminn hennar í Flatahrauni um klukkan 5 en síðan virðist slokkna á símanum rétt hjá gömlu slökkvistöðinni,“ segir Sigurlaug en vinir og vandamenn leita nú á svæðinu.
„Þetta er eina vísbendingin sem við höfum núna um hvarf Birnu minnar,“ segir Silla sem kveðst þiggja alla mögulega aðstoð. „Hún er vön að skila sér heim snemma og hún hefur ekki sést online á samskiptamiðlum. Þá er mjög ólíkt henni að ekki sé hægt að ná í hana. Við þiggjum alla hjálp sem hægt er að fá.“
Upplýsingar um ferðir Birnu berist til lögreglu í síma 444 1000.