fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Hverjir verða villikettirnir nú?

Ný ríkisstjórn hefur eins þingmanns meirihluta – Hver þingmaður í raun með neitunarvald

Ritstjórn DV
Laugardaginn 14. janúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki má mikið út af bregða í störfum nýrrar ríkisstjórnar í ljósi þess að hún hefur aðeins eins manns meirihluta á Alþingi. Hver þingmaður hefur því í raun neitunarvald í hvaða máli sem vera kann. Þeir sem DV hefur rætt við telja þó ekki að búast megi við því að upp úr sjóði innan stjórnarinnar, þingmenn muni stíga varlega til jarðar, meðvitaðir um þennan nauma meirihluta. Hins vegar muni það einnig birtast í því, sem raunar sé sjáanlegt í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar, að fáar róttækar breytingar séu á döfinni.

Mun ekki sitja þögull hjá ef reynt verður að gjörbylta landbúnaðarkerfinu.
Haraldur Benediktsson Mun ekki sitja þögull hjá ef reynt verður að gjörbylta landbúnaðarkerfinu.

En hvaða þingmenn eru líklegir til að koma stjórnarsamstarfinu í uppnám? Viðmælendur DV vildu ekki koma fram opinberlega og benda á ákveðna þingmenn en nefndu þó nokkur nöfn. Fyrstan bæri að nefna Harald Benediktsson, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Vitað er að Haraldur sóttist eftir því að verða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og sömuleiðis var hann því mjög mótfallinn að Viðreisn fengi það ráðuneyti. Haraldur er fyrrverandi formaður Bændasamtaka Íslands og er sjálfur bóndi. Verði reynt að gera róttækar breytingar á landbúnaðarkerfinu má búast við því að Haraldur muni ekki sitja þegjandi undir því.

Ásmundur gæti valdið usla

Annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem nefndur hefur verið til sögunnar er Ásmundur Friðriksson. Ásmundur hefur lýst áhyggjum af fjölgun hælisleitenda sem leita hingað til lands og meðal annars velt því upp í þingræðu að huga ætti að lokun landamæra. Þá velti Ásmundur því einnig fyrir sér á Facebook árið 2015 hvort bakgrunnur múslima hefði verið kannaður, í samhengi við hryðjuverkin í París. Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar segir að stefnt skuli að því að taka á móti fleiri flóttamönnum auk þess sem lögð er áhersla á að styðja við innleiðingu nýrra útlendingalaga. Ásmundur greiddi einmitt atkvæði gegn nýjum útlendingalögum á síðasta ári. Í samtölum DV við heimildarmenn er áhyggjum lýst af því að Ásmundur gæti beitt sér gegn þessum stefnumiðum og valdið usla í stjórnarsamstarfinu.

Hefur lýst efasemdum um stefnu í málefnum flóttmanna og hælisleitenda.
Ásmundur Friðriksson Hefur lýst efasemdum um stefnu í málefnum flóttmanna og hælisleitenda.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Fleiri nöfn sem nefnd voru eru meðal annars nöfn Sjálfstæðisþingmannanna Brynjars Níelssonar og Vilhjálms Bjarnasonar, auk Páls Magnússonar. Þeir tveir fyrrnefndu séu þekktir að því að fara eigin leiðir og kveða fast að orði um mál. Þó megi telja líklegt að þeir geri sér grein fyrir að feta þurfi varfærnislega í stjórnarsamstarfi með svo tæpan meirihluta. Páll hafi þegar markað sér stöðu með því að lýsa óánægju með að hafa ekki fengið ráðherrastól en það þurfi þó ekki að þýða að hann muni rugga bátnum frekar.

Á ekki von á róttækum breytingum

Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að í þessu ljósi þurfi ekki að reikna með að ríkisstjórnin komi fram róttækum breytingum í umdeildum málum. „Hver einasti stjórnarþingmaður hefur í raun neitunarvald og maður veit aldrei hvenær það mál kemur upp sem þingmaður beitir sér gegn. Almennt séð getur hver og einn stjórnarþingmaður stoppað mál eða gert samkomulag um að koma sínum áherslum að, í stöðu sem þessari.“

Stefanía bendir til að mynda á að breytingar á lögum um fiskveiðar hafi ekki flogið í gegnum þingið þegar slíkt hefur verið reynt á síðustu árum, og þá af ríkisstjórnum með töluvert meiri þingstyrk en sú sem nú hefur tekið við. Í tíð vinstristjórnarinnar hafi frumvörp þess efnis ekki náð fram að ganga og í tíð síðustu ríkisstjórnar hafi ekki einu sinni náðst að fara með frumvarp þess efnis í gegnum ríkisstjórnina. „Ég á nú eftir að sjá að það náist samstaða innan ríkisstjórnarinnar eða þingsins um róttækar breytingar í þeim efnum, til dæmis.“

Stefanía segir að í þessu ljósi gæti orðið erfitt að hrinda í framkvæmd róttækum breytingum í hvaða málaflokki sem er. „Þessi staða kallar á að til að koma málum í gegn getur þurft að tryggja stuðning út fyrir þingflokkinn. Það er erfitt að nefna einhvern einn tiltekinn stjórnarþingmann sem verður tregari í taumi en einhver annar. Það líður ábyggilega ekkert á löngu þar til einhver þeirra mun lýsa efasemdum með einhver mál stjórnarinnar. Það munu koma upp erfið mál sem skekja stjórnina og það getur verið að menn þreytist á þessari stöðu til lengdar og leiti þá jafnvel leiða til að styrkja stjórnina.“

Spurð hvort megi gera ráð fyrir að slíkur ágreiningur verði gerður opinber segir Stefanía að það sé tvennt til í því. Annars vegar sé ekki ólíklegt að menn reyni eftir megni að halda deilum innan flokkanna og innan meirihlutans en hins vegar hljóti menn að reyna að vinna sér stöðu. „Sem dæmi, innan Sjálfstæðisflokksins hafa menn oftar en ekki farið hljótt með ágreining í gegnum tíðina og lægt öldur innan flokks. Til að fá samningsstöðu þurfa menn hins vegar að koma óánægju á framfæri og við munum án efa sjá þingmenn beita sér, til dæmis í fjölmiðlum, í því skyni.“

Stjórnin í raun eins og minnihlutastjórn

„Ég á nú martraðarkenndar minningar um það frá því ég sat í ríkisstjórn“

Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra í vinstristjórninni sem sat á árunum 2009 til 2013, þekkir vel hvernig einstakir þingmenn geta beitt sér gegn málum sem ríkisstjórn vill koma áfram. Katrín segir þó erfitt að benda á einhverja sérstaka þingmenn nú sem gætu farið gegn ríkisstjórninni og það væri í raun ósanngjarnt að gera. „Auðvitað geta allir, í einhverjum málum, sett einhverja úrslitakosti. Ég á nú martraðarkenndar minningar um það frá því ég sat í ríkisstjórn. Það getur verið ólíklegasta fólk sem það gerir og þess vegna er erfitt að taka einhvern út í þeim efnum. Ef maður horfir hins vegar á stóra samhengið núna þá er stjórnarsáttmálinn frekar almennt orðaður, fátt er meitlað í stein. Það er held ég til marks um að stjórnarsamstarfið verður línudans og menn gera sér grein fyrir því. Það er ekkert óeðlilegt í 32 manna meirihluta að stjórnarsáttmáli sé með þeim hætti. Það er ekkert ólíklegt að stjórnin þurfi að leita liðsinnis stjórnarandstöðunnar í ákveðnum málum og þá er skynsamlegt að hafa svigrúm í málum. Það gæti orðið áhugaverð lýðræðislega tilraun ef það tekst að breyta vinnubrögðum í störfum þingsins með þeim hætti.“

Katrín segist sannfærð um allir þingmenn stjórnarflokkanna muni stíga varlega til jarðar, annað sé ekki í boði. Með eins manns meirihluta þurfi ríkisstjórnin í raun að starfa eins og minnihlutastjórn. Hvað varði skeytasendingar strax í upphafi, til að mynda frá Páli Magnússyni og Brynjari Níelssyni, þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þá komi þær ekkert á óvart. „Þeir voru alveg ábyggilega í hópi þeirra sem komu til greina sem ráðherraefni og það er ekkert óeðlilegt að þeir sem sitja eftir lýsi því að þeir hafi verið tilbúnir til að takast á við verkefnin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi