Björt Ólafsdóttir, nýr ráðherra umhverfismála, segir að ríkið muni ekki veita frekari ívilnanir með peningum skattgreiðenda til að menga hér stjórnlaus. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Kísilver United Silicon hefur verið gagnrýnt harðlega að undanförnu fyrir mengun. Björt segist ekki skilja að á sínum tíma hafi verið gefið grænt ljós á starfsemina í gegn um fjárfestingasamninga þáverandi stjórnarherra. „Við veitum ekki ívilnanir fyrir mengandi stóriðju, þeim kafla í Íslandssögunni er lokið,“ er haft eftir henni.