fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Bocciaheimurinn á Akureyri nötrar: Klofningur, flótti og ásakanir um kynferðisbrot

Klofningur í Akri – Iðkandi sakar fyrrverandi formann um nauðgun – Maðurinn neitar sök

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Þriðjudaginn 9. maí 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Boccia-heimurinn á Akureyri er klofinn og átök eiga sér stað á milli tveggja klúbba í bænum. Hafa 16 fyrrverandi liðsmenn Akurs, sem glíma við þroskaskerðingu af einhverju tagi, gengið úr félaginu í nýtt ósamþykkt félag sem heitir BFA sem stendur fyrir Bocciafélag Akureyrar. Málið er sérstakt en ágreininginn sem upp er kominn má rekja til þess þegar fyrrverandi formaður Akurs, Vigfús Jóhannesson, ákvað að stíga til hliðar eftir að skjólstæðingur hans kærði hann fyrir nauðgun. Tekið skalt skýrt fram að ekki hefur verið dæmt í því máli og þvertekur Vigfús fyrir að hafa beitt konuna ofbeldi. Áður hafði Vigfús verið ávíttur af réttargæslumanni fatlaðra á Akureyri þar sem hann þótti sýna af sér ósæmilega hegðun sem þjálfari í garð stúlkunnar haustið 2014, en samkvæmt heimildum DV kvörtuðu milli fimm og sjö manns, sem urðu vitni að hegðun Vigfúsar á móti á Seyðisfirði. Vigfús segir í samtali við DV að hann hafi ekki gert neitt rangt. Réttargæslumaður fatlaðra hefur einnig dregist inn í deilurnar og var kvartað undan honum til velferðarráðuneytisins eftir að hann samþykkti að Vigfús yrði talsmaður stúlkunnar.

Vigfús hélt áfram þjálfun eftir að hafa verið kærður en þegar lögregla fór að rannsaka málið af fullum þunga í byrjun árs 2016 og birti Vigfúsi kæru steig hann til hliðar sem formaður og varaformaður tók tímabundið við stjórnartaumum. Þá hætti Vigfús einnig þjálfun. Í maí það sama ár var kosin ný stjórn. Var megn óánægja á fundinum. Vigfús hafði áður verið formaður, eiginkona hans gjaldkeri og aðrir stjórnarmenn voru þroskaskertir iðkendur í íþróttafélaginu. Í nýrri stjórn var ein kona sem hafði kvartað undan Vigfúsi vegna dóttur sinnar þegar hann fór með henni einni í sund og svo móðir stúlkunnar sem hafði kært Vigfús fyrir kynferðisbrot.

Mikil óánægja var á meðal iðkenda hjá Akri og sögðu sextán manns sig þá þegar úr félaginu. Forsvarsmenn Akurs segja iðkendurna hafa farið yfir í nýtt og ósamþykkt félag sem sé á vegum Vigfúsar. Skráður formaður BFA er Ásgeir Vilhelm Bragason. Vigfús segist hvergi koma nálægt félaginu og þá komi hann ekki nálægt þjálfun en viðurkennir að hann sé leiðbeinandi. Þá er félagið skráð til húsa á sama stað og fyrirtæki Vigfúsar.

Hvað er boccia?

Boccia er keppnisíþrótt sem líkist keiluspili og bocca. Hún er hugsuð fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Hún er meðal annars ein af opinberum greinunum sem keppt er í á Ólympíuleikum fatlaðra og er spiluð í yfir 40 löndum á heimsvísu. Heimild: Wikipedia

Forsaga

Vigfús Jóhannesson er vinsæll kennari í boccia. Þá naut hann mikilla vinsælda hjá skjólstæðingum sínum bæði í Akri og hinu nýja félagi BFA en þangað virðist fjöldi iðkenda hafa fylgt honum, en tekið skal fram að hann segir sjálfur að iðkendur hafi átt frumkvæði að því að stofna nýtt félag. Vigfús hefur verið sakaður um að vera í óeðlilega miklum samskiptum við skjólstæðinga sína þegar hann stýrði Akri, fara með þeim í sund og halda samkvæmi en hann gerir lítið úr slíku tali. Þá hefur hann verið sakaður um að rúnta um með iðkendur sína á Lödusportbifreið á eftir iðkendum sem enn æfa með Akri og sýnt þannig af sér ógnandi tilburði. Vigfús hlær að þessum ásökunum:

„Ég á gamla Lödu Sport sem ég gerði upp og er fornbíll. Það er nú ekki rétt að ég sé rúntandi um og flautandi á fólk því að flautan er biluð á honum. Ég viðurkenni að ég hef farið rúnt stundum með tvo til þrjá úr félaginu. Þá erum við að leita að pókemon.“

Umdeilt mót á Seyðisfirði

Haustið 2014 fór fram á Seyðisfirði Íslandsmót í boccia. Þar þótti Vigfús sýna af sér óeðlilega framkomu gagnvart skjólstæðingi sínum. Konan, sem var þá 23 ára, hafði tapað leik og tók það nærri sér. Segja sjónarvottar að Vigfús hafi tekið lengi innilega utan um hana og síðan leitt hana inn í herbergi. Þá hafi hún verið með honum öllum stundum á umræddu móti. Minnst sjö aðilar hjá mismunandi íþróttafélögum höfðu þá samband við réttargæslumann fatlaðra á Akureyri. Í kjölfarið var Vigfús áminntur af réttargæslumanninum.

„Stelpan var að spila leik í úrslitum og tapaði mjög stórt og hún er ofboðslega tapsár,“ segir Vigfús. „Hún stóð þarna hágrenjandi og ég tók utan um hana á gólfinu. Það var nú ekkert annað. Ég leiddi hana út úr salnum og að þvottahúsi sem var þarna og þar huggaði ég hana á meðan hún grenjaði. Það voru öll samskiptin.“

Voruð þið í sambandi, þú og þessi stúlka?

„Ég get ekki sagt neitt til um það, fyrirgefðu.“

Vigfús segir móður konunnar standa á bak við kæruna og fyrrverandi skjólstæðingur hans tekið þátt í því þar sem hún hafi verið reið og sár út í hann vegna misskilnings. Vigfús sakar móðurina um að vera í hefndarhug og að kæran snúist um að hafa af sér peninga. Þá segir hann málið byggt á sandi.

„Kæran var ekki komin lengra en það að henni var vísað til baka til lögreglu. Þessi kona kom sér í stjórn Akurs með látum sem varð til þess að allir keppendur gengu út úr Akri, eftir stendur félag sem er ekki neitt út af reiði og hatri þessarar konu. Þá hefur hún gert allt til að eyðileggja fyrir mér og bera út ósannindi og lygar, því miður. Ég get ósköp lítið gert annað en að halda mér til hlés og vera kurteis.“

Hvað er verið að kæra þig fyrir?

„Hún er að segja að ég hafi misnotað sig. Þetta er nauðgunarkæra. Það er ekki rétt. Það er langur vegur þar frá. Það er bara búið að leggja fram kæru og ekkert annað. Þetta fólk er ekkert að gera annað en að sverta mitt mannorð. Stelpan er sögð með þroskaskerðingu. Hún er ekki með skerðingu. Hún er ekki með örorku. Þessu máli var vísað aftur til lögreglu vegna þess að stúlkan er ekki með þroskaskerðingargreiningu. Það var farið fram á það að hún færi í greiningu til að sýna fram á að hún væri með greininguna. Þetta eru tvær konur sem eru að reyna ná sér í peninga.“

Áttir þú og þessi stúlka í sambandi, þú og skjólstæðingur þinn?

„Ég get ekki farið að segja til um það. Það væri ekki skynsamlegast af mér,“ svarar Vigfús.

Vigfús var, eins og áður hefur komið fram, formaður Akurs. Eiginkona hans sinnti starfi gjaldkera og í stjórn sátu iðkendur. Heimildarmenn DV segja að Vigfúsi hafi verið settur stóllinn fyrir dyrnar eftir að hafa verið birt kæran og hann neyddur til að segja af sér. Vigfús þvertekur fyrir það og kveðst sjálfur hafa átt frumkvæðið. Í kjölfarið að ný stjórn var kosin yfirgaf stór hópur iðkenda Akur og fylgdu Vigfúsi yfir í nýtt félag. Vigfús neitar hins vegar að koma nálægt félaginu, sitji ekki í stjórn og komi ekki nálægt þjálfun en formaður félagsins segir hann einn af stofnfélögum.

„Ég stofnaði ekki félagið. Það var stofnað nýtt félag og ég er bara starfsmaður félagsins. Ég er ekki í stjórn félagsins eða neitt.“

Þegar Vigfús er spurður hver hafi stofnað félagið svarar hann:

Ég viðurkenni að ég hef farið rúnt stundum með tvo til þrjá úr félaginu. Þá erum við að leita að pókemon

„Hann heitir Ásgeir Bragason og svo krakkar sem eru í félaginu. Iðkendur sjálfir. Ég er ekki að þjálfa þar. Ég hef bara farið á æfingar til að leiðbeina þeim.“

Ert þú að þjálfa þessa krakka sem eru í þessu nýja félagi?

„Ég er bara að leiðbeina, hjálpa til, því ég var þjálfari Akurs. Ég er bara þarna sem pabbi dóttur minnar sem er þarna.“

Ásgeir, formaður félagsins, segir Vigfús hins vegar vera stjórnarmann. Þá er félagið skráð til heimilis þar sem fyrirtæki hans, Plastás, er til húsa. Þá hafi erindi frá hinu nýja félagi komið til Akurs í umslögum merkt fyrirtækinu Plastás, sem er í eigu Vigfúsar. Vigfús útvegaði einnig félaginu aðstöðu til að stunda æfingar en félagið er ekki löglegt og iðkendur fá því hvergi að keppa. Félagið hefur sótt um inngöngu hjá ÍBA en það hefur ekki verið tekið fyrir.

Vigfús heldur því fram að hann hafi ekki gert nokkuð rangt í samskiptum sínum við iðkendur þrátt fyrir viðvaranir og kæru. „Ég get í hreinskilni sagt að ég hef orðið fyrir þvílíkri árás frá þessu fólki vegna þessara krakka sem ég hef verið að reyna að hjálpa.“

Málið í vinnslu

DV ræddi við Agnesi Blöndal hjá lögreglunni á Akureyri sem staðfesti að málið væri á borði lögreglu.

„Þetta er í rannsókn hjá okkur og er í ferli. Ég get staðfest það að við erum með til rannsóknar mál, meint brot á fatlaðri stúlku sem á að hafa átt sér stað hérna á Akureyri 2015. Það er í rannsókn og reynum við að hraða henni eins og hægt er. Það þurfti að taka margar skýrslur í málinu. Við sendum málið til héraðsaksóknara á sínum tíma og það var sent til baka með ósk um að frekari gagna væri aflað. Það er verið að vinna í því núna.“

Áhyggjufull móðir

Móðir stúlkunnar segir í samtali við DV að hún hafi ákveðið að styðja dóttur sína í að fara fram með málið til að koma í veg fyrir að brotið yrði á öðrum þroskaskertum skjólstæðingum. Tvíburasystir stúlkunnar sem kærði Vigfús býr nú í íbúð hans og hefur móður hennar áhyggjur af dóttur sinni sem hefur búið þar frá áramótum.

„Þetta uppgötvaðist þegar þau fara í keppnisferð 2014. Þá hafði önnur ung kona samband við réttargæslumann fatlaðra. Ég kom alls staðar að lokuðum dyrum. Hún var orðin 18 ára og ekkert hægt að gera. Það sem mér fannst grátlegast er að eftir að ég hafði samband skrifaði réttargæslumaður undir og samþykkti að Vigfús væri fjárgæslumaður hennar.“

Móðir stúlkunnar sem situr í stjórn Akurs segir að 11 til 12 iðkendur hafi yfirgefið félagið til að æfa með BFA.

„Ég veit það líka að hann er ekki lengur skráður sem formaður þessa félags en við vitum að þetta er félag sem hann er að stofna,“ segir móðirin og bætir við að málið hafi tekið mikið á. „Andlega hliðin var búin. Dóttir mín er enn að vinna í þessu og gengur til sálfræðings og hún er búin að loka sig af. Hún fer ekki mikið út. Hún er líka hrædd.“

Hún bætir við að hennar skoðun sé að Vigfús eigi ekki að koma nálægt þjálfun þar til niðurstaða sé komin í hans mál.

„Ég fór með þetta af stað á sínum tíma til að bjarga hinum krökkunum.“

Formaður vill fólkið heim

Hrafnhildur Haraldsdóttir er starfandi formaður Akurs. Eftir að Vigfús var sakaður um kynferðisbrot steig hann til hliðar og Sædís Inga Ingimarsdóttir tók tímabundið við en lét af störfum eftir að hafa flutt úr bæjarfélaginu.

„Ég vil ekki láta hafa mikið eftir mér á þessu stigi málsins en við höfum áhyggjur af okkar iðkendum og myndum vilja sameina þetta aftur og sætta þetta og fá okkar fólk til baka hvernig sem það yrði gert.“

Valdalaus formaður

Ásgeir Vilhelm er formaður hins nýja félags. Hann kveðst ekki hafa komið að stofnun þess. Hann segist hafa þekkt Vigfús í rúm tvö ár og ný stjórn, sem skipuð er iðkendum, hafi óskað eftir að hann yrði formaður. Aðspurður hvort Vigfús hafi stofnað félagið segir Ásgeir:

„Hann gerði það ekki. Hann er stofnfélagi ásamt fjölmörgum öðrum. Ég sé ekki hvernig þetta tengist honum, þetta félag.“

Er hann ekki tengdur félaginu?

„Hann er félagi í því. Ég skil ekki hvernig hann og hans mál skipta þessu félagi máli,“ segir Ásgeir ósáttur við spurningar blaðamanns. Sagði hann persónuleg mál Vigfúsar ekki koma félaginu við. Þá sagði hann að félagið væri ekki hans þótt hann væri formaður félagsins og hann framkvæmdi aðeins það sem stjórnin sem skipuð er iðkendum bæði hann um. Bætti hann við að enginn formlegur þjálfari væri í félaginu em Vigfús væri einn leiðbeinenda. Þegar Ásgeir var spurður af hverju félagið væri með heimilisfang á verkstæði Vigfúsar svaraði hann:

„Ég hef ekki hugmynd um það. Póstfangið kemur bara þangað.“

Ef hann kemur ekki nálægt félaginu, af hverju er það skráð á verkstæðinu hans?

„Við höfum bara þetta heimilisfang til að fá póstinn sem við þurfum. Hann kemur félaginu ekkert við. Hann er bara félagi þarna. Hvað kemur það þér við hvert við fáum póstinn? […] Ég er búinn að þekkja Fúsa kannski í tvö ár. Ég sé ekki hvað það skiptir máli. Þú ert að búa til eitthvað mál sem snýr að öðrum sem eru ósáttir. Við erum ekki ósátt við einn né neinn og höldum okkar striki. Ég skil ekki hvað það kemur formanni þessa félags við, hans persónulegu mál. Það er ástæða fyrir því að leitað var til mín. Ég geri mitt besta fyrir þetta fólk. Mér þykir vænt um þetta fólk.“

Réttargæslumaður fatlaðra

Réttargæslumaður fatlaðra á Akureyri
Guðrún Pálmadóttir Réttargæslumaður fatlaðra á Akureyri

Hópur foreldra kvartaði undan réttargæslumanni fatlaðra til velferðarráðuneytisins og taldi að hann hefði brugðist starfsskyldum. Snerist kæran um að foreldrarnir töldu að þegar Vigfús steig til hliðar og ný stjórn var kosin hefði réttargæslumaður átt að kynna iðkendum málið. Í einum liðnum sagði:

„Er það t.d. ásættanlegt að enginn skipti sér af því að maður sem er með kæru um kynferðislega misnotkun á bakinu sé í slíkum samskiptum við stóran hóp fatlaðra einstaklinga og nái að stýra þeim í einu og öllu og fái þau upp á móti fólki sem vill þeim vel […] Ég ítreka að við höfum hag þessara einstaklinga að leiðarljósi og erum ekki að reyna að skerða þeirra frelsi með nokkrum hætti. Okkur þykir þyngra en tárum taki að sjá þennan hóp splundrast og illskuna magnast upp sem svo vel hefði mátt koma í veg fyrir. Sundrung hefur orðið í góðum hóp. Boccia iðkunin er þeirra líf og yndi og þar hafa mörg þeirra eignast vini í fyrsta skipti á ævinni. Þau eiga að baki frábæran árangur í boccia og innanborðs eru Íslandsmeistarar og verðlaunahafar frá öðrum mótum. Hér með er því lögð fram kvörtun vegna starfa réttindagæslumannsins á Akureyri, við teljum að á umræddum hóp þroskahamlaðra einstaklinga hafi verið brotið þegar þau voru ekki upplýst um það hvers vegna þjálfarinn var látinn víkja. Með því hefði mátt koma í veg fyrir það ástand sem nú hefur skapast.“

Í svari velferðarráðuneytisins segir að ekki sé hægt að taka undir þessi sjónarmið, að réttargæslumaður fatlaðs fólks á Norðurlandi hafi brotið á hópi fatlaðs fólks með því að upplýsa ekki um hvers vegna Vigfús var látinn víkja.

Guðrún Pálmadóttir er réttargæslumaður fatlaðra. Hún vildi lítið láta hafa eftir sér um málið. Hún kveðst bundin trúnaði gagnvart skjólstæðingi sínum. Aðspurð hvort það hafi verið rétt ákvörðun að samþykkja að Vigfús yrði talsmaður konunnar eftir að hafa áminnt hann segir Guðrún að það hafi verið ósk konunnar og því orðið að verða við því.

„Þó að fólk sé skert í þroska hefur það sömu réttindi og við. Ég skrifaði undir þennan samning og það gaf mér tilefni til að geta fylgst með.“

Guðrún bætir við að hún hafi rætt við konuna en bætir við að Vigfús hafi sýnt merki þess að hann væri í raun að styðja hana. Sem réttargæslumaður má hún ekki kalla eftir sakavottorði. Hún segir ákvörðunina hafa verið tekna með hagsmuni konunnar í huga en í dag viti hún betur.

„Núna í dag veit ég að það var alls ekki. Þegar slíkt gerist er maður ósáttur með sjálfan sig, þetta voru ákvarðanir sem ég taldi réttar. Maður notar svona hluti til að gera enn betur. Það er eina leiðin.“

Fyrrverandi formaður áhyggjufull

Hún tók tímabundið við sem varaformaður Akurs
Sædís Inga Ingimarsdóttir Hún tók tímabundið við sem varaformaður Akurs

DV hafði samband við Sædísi og óskaði eftir að fá að vita hvernig það kom til að hún tók við af Vigfúsi.

„Sem varaformaður í félaginu tók ég við sem formaður þar sem Vigfús ákvað að draga sig til hlés af persónulegum ástæðum og þá einna helst til að raska sem minnst ró innan félagsins. Einnig var stutt í fyrirhugaða keppnisferð til Svíþjóðar sem iðkendur höfðu haft mikið fyrir að safna fyrir og mikil tilhlökkun var í iðkendum.“

Sædís bætir við:

„Mér þykir miður að svo margir iðkendur hafi yfirgefið Akur því að þetta eru einstaklingar sem hafa æft hjá félaginu í mörg ár og hafa bæði tekið þátt í einstaklingskeppnum og liðakeppnum með félögum sínum þar. Það er því sorglegt að horfa upp á mörg þeirra snúa sér annað.“

Samskiptum Vigfúsar og Sædísar lauk í maí 2016. Hefur hún ekki átt í samskiptum við hann síðan. Sædís vonar að sættir náist í málinu en eins og staðan er núna er ljóst að ágreiningurinn og staðan bitnar á fjölda þroskaskertra einstaklinga sem fá ekki að keppa í íþróttinni sem þau elska.

„Þá hafði hann ítrekað reynt að hafa áhrif á starfið eftir að hann hætti hjá félaginu og einnig á iðkendur félagsins með endalausum símtölum, smáskilaboðum og Facebook-samtölum og olli þetta mikilli sundrung á meðal þessara einstaklinga. En eru þónokkrir einstaklingar úr þessum hóp í samskiptum við mig og mörg þeirra hafa orðið fyrir aðkasti frá fyrrverandi félögum sínum sem kusu að yfirgefa félagið og þykir mér það mjög sorglegt og fær mig jafnvel til að velta því fyrir mér hvaðan sú hegðum kemur og hver sé áhrifavaldurinn á bak við það. Þessi hegðun sem ég persónulega hef upplifað frá manninum er nóg til að ég myndi ekki kæra mig um að barnið mitt væri í félagi sem hann kæmi nokkurs staðar nálægt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus
Fréttir
Í gær

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“