fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Mótmæla úrræði um notkun séreignarsparnaðar við fyrstu kaup

Stuðninginum beint frá þeim tekjulægri til þeirra tekjuhærri

Kristín Clausen
Sunnudaginn 4. september 2016 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Með því að beina stuðningi stjórnvalda við húsnæðiskaupendur frá vaxtabótakerfinu yfir í að heimila fólki að nýta séreignasparnað til að kaupa fyrstu íbúð er verið að beina stuðningnum frá þeim tekjulægri til þeirra tekjuhærri, að því er fram kemur í umsögn BSRB um frumvarp til laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Bandalagið mótmælir þessari þróun harðlega.

Dregið úr stuðningi við fasteignaeigendur

Það úrræði sem stjórnvöld ætla að bjóða upp á byggir á því að skattfrjáls sparnaður einstaklingana sé nýttur til að eignast fasteign. Í umsögn BSRB um frumvarpið er bent á að stjórnvöld hafi á undanförnum árum dregið verulega úr stuðningi við fasteignaeigendur. Sá stuðningur hafi verið á formi vaxtabóta sem hafi árið 2011 verið tæplega 19 milljarðar króna en hafi verið áætlaður um 6,2 milljarðar króna á fjárlögum vegna ársins 2016. Vaxtabætur hafi því verið lækkaðar um 70% á síðustu fimm árum.

Bent er á að vaxtabætur séu sniðnar að þörfum almennings þar sem þeir sem séu með lægri tekjur fái mest en bæturnar skerðist með hærri tekjum og eignum.

„Skattaafsláttur á séreignasparnaði snýr hins vegar að stuðningnum við þá tekjuhærri sem fá meiri stuðning en tekjulægri. BSRB mótmælir harðlega þeirri þróun að húsnæðisstuðningur beinist frá þeim tekjulægri til þeirra tekjuhærri,“ segir í umsögn BSRB.

Þröng skilyrði

Bandalagið telur vissulega að sá stuðningur sem stjórnvöld áformi með frumvarpinu muni koma einstaklingum betur áleiðis í söfnun eða aukinni eignamyndun fyrsta húsnæðis, en bendir á að þröng skilyrði séu fyrir því að hægt sé að nota úrræðið. Það útiloki hópa sem þurfi á sambærilegum stuðningi að halda og kaupendur fyrstu fasteignar.

Þá bendir BSRB á að úrræðið leysi ekki þann bráðavanda sem þeir sem séu á húsnæðismarkaði nú glími bið. Sá vandi sé meðal annars skortur á hagkvæmu leiguhúsnæði og gallað húsnæðislánakerfi með of háum vöxtum.

Þá er það gagnrýnt í umsögn bandalagsins að þær fjárhæðir sem einstaklingar eða sambúðaraðilar geti safnað með úrræðinu séu of lágar til að geta staðið undir 20% útborgun af nokkurri íbúð miðað við núverandi fasteignaverð. Því síður muni þær standa undir útborgun eftir fimm ár í ljósi þess hver þróunin hafi verið á fasteignaverði og hvernig líklegt sé að það þróist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk
FréttirPressan
Í gær

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?
Fréttir
Í gær

Heilt íþróttafélag snerist gegn 12 ára dreng sem sakaði Dalslaugarníðinginn um kynferðisbrot – „Ég vissi að perrinn næðist, gæti ekki hætt“

Heilt íþróttafélag snerist gegn 12 ára dreng sem sakaði Dalslaugarníðinginn um kynferðisbrot – „Ég vissi að perrinn næðist, gæti ekki hætt“