Engin merki um gosóróa
Þrír jarðskjálftar yfir 3 af stærð mældust í Kötlu í nótt samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Skjálftahrinan í eldfjallinu stendur því enn yfir. Engin merki eru þó um gosóróa á svæðinu.
Stærsti skjálftinn í nótt var‘ð klukkan 04:41 í Kötlu öskjunni og var af stærð 3,7. Einni mínútu áður mældist annar skjálfti á sömu slóðum af stærðinni 3,1. Tilkynningar bárust frá Þórsmörk um að stærri skjálftinn hefði fundist þar.
Um 200 jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólarhringinn í Kötlu. Aðrir skjálftar yfir þremur stigum hafa mælst í hrinunni, 3,2 að stærð í nótt kl 02:43 og 3,0 að stærð kl 16:28 í gær.
„Þetta er hæsta daglega tíðni á skjálftum við Kötlu þetta árið og í raun síðan árið 2011. Allir skjálftarnir eru mjög grunnir,“ segir vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Skjálftavirknin er rétt sunnan við miðja Kötlu öskjuna um 1,5 km norður af katli 16. Rennsli í Múlakvísl hefur farið minnkandi síðan á þriðjudag. Rafleiðnin er frekar há miðað við árstíma.
Flogið var yfir jökulinn 27. september en þá sáust engar verulegar breytingar á yfirborði jökulsins. GPS mælingar sýna jafnframt engar breytingar. Ástandið telst því óbreytt. Hvorki eru því merki um gosóróa né jökulhlaup á svæðinu.