Tveir sjúkrabílar eru nú á leið á vettvang vegna slyss sem varð við gatnamót Vesturlandsvegar og Hvítárvallarvegar nú fyrir skömmu. Það var sjúkrabíll í forgangsakstri sem lenti í hörðum árekstri við annan bíl.
Lögreglan á Vesturlandi hefur ekki frekari upplýsingar um alvarleika málsins en viðbúnaður er þó nokkur.
Fréttin verður uppfærð.