Íslenska þjóðin er bæði að eldast og að fitna sem er dýrt fyrir ríkiskassann
Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins telur að lausnin á aðkallandi vandamálum í heilbrigðiskerfinu felist í auknum einkarekstri.
Þá telur sviðið að bregðast þurfi við áskorunum með því að bjóða út rekstur heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og leggja áherslu á hagkvæmari úrræði. Til dæmis heimaþjónustu.
Þetta kemur fram í greiningu sviðsins, Heilbrigð samkeppni: Áskoranir og tækifæri í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Þar segir meðal annars að Íslandi standi nú frammi fyrir tveimur vandamálum sem muni koma til með að auka kostnað vegna heilbrigðismála. Annars vegar öldrun þjóðar og hins vegar það að þjóðin sé að fitna.
Þrjár leiðir geti mætt vandamálinu. Það eru skattahækkanir, aukin greiðsluþátttaka sjúklinga og aukin skilvirkni og hagkvæmari nýting fjármuna. Efnahagssviðið telur þriðju leiðina þá bestu og að mörg sóknarfæri liggi í aukinni skilvirkni og hagkvæmari nýtingu fjármuna.
Efnahagssvið samtaka atvinnulífisins útlistar nokkrum tillögum um hvernig sé hægt að bregðast við þessum áskorunum. Líkt og áður segir má nefna útboð á rekstri heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og að auka möguleika heimilislækna til að starfa sjálfstætt.