fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Handtekinn 26 árum eftir hryllilegan glæp

Joseph Zieler á þungan fangelsisdóm yfir höfði sér

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 29. september 2016 18:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joseph Zieler, fimmtíu og fjögurra ára karlmaður í Flórída, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir morð á ellefu ára stúlku og barnfóstru hennar. Voðaverkið var framið fyrir tuttugu og sex árum, kvöld eitt í maí árið 1990.

Í frétt Cape Coral Daily Breeze kemur fram að lögreglan hafi óvænt komist á sporið í síðustu viku. Þá voru niðurstöður úr DNA-rannsókn úr fyrrnefndum Zieler keyrðar inn í DNA-gagnagrunn lögreglu og fannst samsvörun sem bendlaði hann við morðin fyrir 26 árum.

Zieler er grunaður um að hafa ruðst inn á heimili stúlkunnar, sem hét Robin Cornell, og barnfóstru hennar, Lisu Story. Robin var misnotuð kynferðislega áður en þrengt var að öndunarvegi hennar með þeim afleiðingum að hún kafnaði. Lisa, sem var 32 ára, hlaut sömu örlög. Móðir Robin hafði farið út að skemmta sér umrætt kvöld og var það hún sem fann lík dóttur sinnar og barnfóstrunnar.

Lífsýni sem tekin voru á vettvangi koma heim og saman við lífsýni sem tekin voru úr Zieler á dögunum vegna annars máls sem lögregla hafði til rannsóknar. Að sögn lögreglu er ekki talið að Zieler hafi þekkt til fjölskyldunnar áður en hann braust inn í íbúðina.

Lisa Story, 32 ára, og Robin Cornell, 11 ára.
Fórnarlömbin Lisa Story, 32 ára, og Robin Cornell, 11 ára.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga