Þrír dagar í næsta formannskjör Framsóknarflokksins
Tæp vika er nú liðin frá því að Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, tilkynnti í beinni útsendingu á RÚV að hann hygðist bjóða sig fram til formanns á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi.
Í könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið, dagana 21. til 28. september segjast 52 prósent Framsóknarmanna styðja Sigmund Davíð til áframhaldandi formennsku í flokknum. Sigurður Ingi nýtur stuðnings 37 prósent kjósenda flokksins og Lilja Alfreðsdóttir 11 prósent.
Hins vegar nýtur Sigurður Ingi stuðnings 47,1 prósent kjósenda þegar svör stuðningsmanna allra flokka eru spurðir, Lilja Alfreðsdóttir kemur næst með 25,1 prósent.
Þegar allir eru spurðir mælist Sigmundur Davíð aðeins með 12,3 prósent stuðning.
Flokksþingið verður haldið í Háskólabíói. Formannskjörið fer fram á sunnudaginn og hefst klukkan 11:30.