Ferðamaður sem stóð á þaki bifreiðar sinnar á þjóðveginum skapaði stórhættu – „Það er þörf átaki áður en fleiri láta lífið“
„Hann stóð uppi á þaki bílsins og myndaði Norðurljósin þegar ég kom aðvífandi. Ég hafði orðið var við marga bíla úti í kanti þjóðvegarins nokkru áður enda var glæsileg sýning í boði. Sumir voru með viðvörunarljósin á, aðrir keyrðu inn á afleggjara og einhverjir voru hálfir inni á veginum. Ég fór því varlega og keyrði hægar en vant er,“ segir Kolbrún Ósk Guðjónsdóttir, sem býr í nágrenni Víkur í Mýrdal, í samtali við DV. Blaðamaður hafði samband í kjölfar færslu á Facebook sem hún skrifaði um atvikið.
Kolbrún Ósk var á heimleið í gær þegar að hurð skall nærri hælum á þjóðveginum. Atvikið átti sér stað við brúna yfir Hvammsá og var hún á austurleið. „Ég var með yngsta barnið í bílnum og átti um 50 metra eftir að afleggjaranum heim til mín. Það var niðamyrkur úti. Ég var að koma að brúnni þegar ég sá allt í einu skært ljós í 3 metra hæð. Mér fannst það einkennilegt í meira lagi og skömmu síðar kom annað slíkt ljós. Þá áttaði ég mig á því að um væri að ræða flass og allt í einu sé ég bíl sem var hálfur inn á veginum. Á þaki bílsins stóð ferðamaður að taka myndir af ljósadýrðinni í gríð og erg. Ég rétt náði að sveigja framhjá, flautaði og keyrði síðan heim með öndina í hálsinum. Eftir að ég hafði jafnað mig þá sá ég eftir því að hafa ekki stöðvað bílinn og talað yfir hausamótunum á þessum einstaklingi,“ segir Kolbrún Ósk.
Hún má ekki til þess hugsa hvað hefði gerst ef að hún hefði ekki orðið vör við flassið. „Hann skapaði stórhættu með þessu framferði sínu. Ef að ég hefði klesst á bílinn þá hefði orðið banaslys, það er á hreinu. Ekki veit ég hver réttastaða mín hefði verið, að því gefnu að ég hefði lifað áreksturinn af. Ætli ég hefði ekki verið ákærð fyrir manndráp af gáleysi,“ segir Kolbrún Ósk.
Tæpar tvær vikur eru síðan að erlendur ferðamaður lét lífið á Sólheimasandi, skammt vestan við Pétursey. Maðurinn var í tíu manna hópi á tveimur bifreiðum. Bifreiðarnar höfðu verið stöðvaðar í vegkantinum og fólkið farið út úr þeim. Hinn látni varð fyrir bifreið sem kom aðvífandi og var á vesturleið. „Ég starfa í ferðamannabransanum og fagna þeirri aukningu sem hefur átt sér stað. Flestir ferðamenn fara varlega en þó eru margir sem að átta sig ekki á aðstæðum hér og skapa stórhættu. Þetta er okkar hraðbraut en á mælikvarða þeirra sem koma frá stærri löndum þá er þjóðvegurinn okkar eins og sveitavegur. Það er okkar að fræða þessa einstaklinga, í flugvélinni eða hjá bílaleigunum. Það er þörf átaki áður en fleiri láta lífið,“ segir Kolbrún Ósk.