30 krónur af hverri fernu rennur til tækjakaupanna
Mjólkursamsalan hefur nú sett á fót söfnun með því markmiði að hægt verði að kaupa tækjabúnaði sem auðveldar greiningu á brjóstakrabbameini.
Líkt og einhverjir gætu nú þegar hafa tekið eftir þá hefur D-vítamínbætt léttmjólk skipt um búning. Í stað hefðbundinna umbúða prýða fígúrur í formi lækna nú fernuna.
30 krónur af hverri seldri fernu munu renna til tækjakaupanna.