Næturvakt slökkviliðisins tók á móti tveimur börnum í nótt
Næturvakt slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í nótt en sjúkraflutningamenn tóku á móti tveimur börnum seint í gærkvöldi og í nótt.
Mbl.is greinir frá. Þar segir að samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu hafi verið tekið á móti barni við Laugarásveg snemma í morgun. Foreldrarnir voru ekki komnir inn í sjúkrabílinn þegar barnið ákvað að nú væri tímabært að koma í heiminn.
Lítill drengur fæddist síðan í sjúkrabíl í Kópavogi á tólfta tímanum í gærkvöldi.