Heildarkostnaðurinn við forsetaframboð hans nam tæpum 28 milljónum króna
Kostnaður vegna forsetaframboðs Davíðs Oddssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, nam tæpum 28 milljónum króna. Þetta kemur fram í útdrætti úr endurskoðuðu uppgjöri Davíðs vegna þátttöku hans í kjöri til forseta fyrr á árinu. Útdrátturinn er birtur á vef Ríkisendurskoðunar.
Sjá einnig: Forsetaframboð Guðna kostaði 25 milljónir
Kostnaðurinn við framboð Davíðs var nokkuð hærri en kostnaður Guðna Th. Jóhannessonar sem náði kjöri. Kostnaður Guðna nam 25 milljónum króna í það heila og lagði hann sjálfur rúma milljón í framboðið.
Framlög lögaðila vegna framboðs Davíðs námu 8,2 milljónum króna á meðan framlög einstaklinga námu rúmlega 8,1 milljón króna. Mestu munaði þó um framlag úr eigin vasa Davíðs sem nam 11,4 milljónum króna. Þá lagði eiginkona Davíðs, Ástríður Thorarensen, 400 þúsund krónur í framboðið.
Fleiri nafntogaðir einstaklingar lögðu Davíð lið og má þar nefna Þórólf Gíslason, kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki, og Kristján Loftsson, eiganda Hvals, sem báðir lögðu 400 þúsund krónur í framboð Davíðs.
Í dag var útdráttur úr uppgjöri Höllu Tómasdóttur einnig birtur en kostnaður við forsetaframboð hennar nam 8,8 milljónum króna. Halla lagði sjálf tvær milljónir í kosningabaráttuna, lögaðilar lögðu tæpar 3,8 milljónir og einstaklingar lögðu 3,1 milljón.