Ekkert bendir til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða
Tvítugur maður að nafni Arcan Cetin var handtekinn í nótt grunaður um að hafa banað 5 manns í skotárás í verslunarmiðstöð í bænum Burlington í Washingtonfylki síðastliðinn föstudag. Fjórar konur og einn karlmaður voru myrt í árásinni. Nöfn fórnarlambanna hafa ekki verið birt en lögreglan segir þau vera frá unglingsaldri upp í eldri borgara.
Upptökur úr öryggismyndavélum í verslunarmiðstöðinni sýna manninn halda á riffli á meðan hann gengur um verslunarmiðstöðina. Maðurinn flúði af vettvangi áður en lögreglan kom á staðinn.
Alríkislögreglan segir engin sönnunargögn benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Ekki er vitað hver ástæða skotárasarinnar er en Celtin hefur þrisvar sinnum verið ákærður fyrir líkamsárás og einu sinni verið handtekinn fyrir ölvunarakstur.