Þeir sem vita hvar hún er stödd núna eru hvattir til að hringja í 112
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samstarfi við lögregluna á Akureyri og barnavernd Reykjavíkur, lýsa eftir Söndru Rún Raybold. Sandra Rún er 15 ára gömul, fædd árið 2001.
Sandra Rún er 160 cm á hæð, grannvaxin og með ljóst sítt hár. Sandra Rún er með pinna í nefi og vör.
Ekki er vitað um klæðnað en þó er talið að hún sé í svartri úlpu.
Sandra Rún fór frá Laugalandi í Eyjafirði um kvöldmatarleitið á miðvikudag. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hvar hana er að finna, eða vita um ferðir hennar síðan um kvöldmat á miðvikudag, er bent á að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 444 2805 eða með tölvupósti á 8420@lrh.is
Ef um er að ræða upplýsingar um hvar hún er stödd núna, má hringja í 112