fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Vilja ekki afhenda ÍAV búnað úr kísilverinu

Deilan í Helguvík dómtekin á mánudag – Gætu leitað til lögreglu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 6. ágúst 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þeir meinuðu okkur aðgang að vinnusvæðinu svo við gætum ekki tekið allar eigur okkur. Við höfum ekki enn fengið þann búnað og svo gæti farið að lögreglan verði fengin til að aðstoða okkur við að ná honum,“ segir Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, aðspurður hvort starfsmenn verktakafyrirtækisins hafi sótt rafmagnstöflur, kapla og annan búnað í eigu þess sem þeir voru neyddir til að skilja eftir á lóð United Silicon í Helguvík um miðjan júlí.

Sigurður R. Ragnarsson.
Forstjóri ÍAV Sigurður R. Ragnarsson.

Starfsmenn ÍAV lögðu þá niður störf og hefur forstjórinn fullyrt að eigendur United Silicon, sem klára í ágúst byggingu á tólf milljarða króna fyrsta áfanga kísilmálmverksmiðju fyrirtækisins, skuldi ÍAV rúman milljarð króna og að stærstur hluti þeirrar kröfu sé gjaldfallinn. Magnús Garðarsson, stjórnarmaður og einn eigenda United Silicon, hefur neitað þessu og kennt ÍAV um tafir á verkinu. Í samtali við DV staðfestir Magnús að starfsmenn hans hafi ekki viljað láta búnað verktakafyrirtækisins af hendi.

„Þetta er aldrei rosalega gaman. En við viljum að staðið sé við samninga og mér finnst skrýtið hvernig ÍAV hélt að þeir væru komnir í eitthvert stríð. Við vorum ekki í neinu stríði,“ segir Magnús.

Magnús Garðarsson er stærsti eigandi Sameinaðs Sílikons hf. sem ber erlenda heitið United Silicon.
Stjórnarmaður kísilversins Magnús Garðarsson er stærsti eigandi Sameinaðs Sílikons hf. sem ber erlenda heitið United Silicon.

Tafði verkið

Sigurður segir ÍAV hafa verið í fullum rétti þegar starfsfólk fyrirtækisins vildi taka búnaðinn með sér. Hann sé merktur fyrirtækinu og markmiðið hafi verið að koma í veg fyrir frekara tjón en það sem ÍAV hafi nú þegar orðið fyrir.

„Forsvarsmenn United vilja meina að þeir eigi rétt á því að leigja þetta af okkur gegn sanngjörnu gjaldi en þegar þeir skulda okkur mjög háar upphæðir þá höfum við ekki mikla trú á að þeir muni greiða leigu fyrir þann búnað sem við eigum þarna. Þetta hefði auðveldlega geta endað í handalögmálum en við bjóðum ekki starfsfólki okkar upp á slíkt,“ segir Sigurður. Forstjórinn hefur áður sagt í fjölmiðlum að verkinu hafi verið nærri lokið af hálfu ÍAV og að hann telji eigendur United Silicon ekki eiga fyrir framkvæmdinni.

DV fjallaði um deiluna í Helguvík í byrjun júní en stjórnendur ÍAV höfðu þá hótað að hætta vinnu við kísilverið. Forsvarsmenn fyrirtækjanna tveggja komust þá að samkomulagi um að ÍAV kláraði fyrsta áfanga kísilversins. Sá samningur stóð því í um einn og hálfan mánuð. Starfsmaður verktakafyrirtækis á svæðinu líkti samskiptum fyrirtækjanna við stríðsástand í samtali við DV.

„Borgum að sjálfsögðu meiri laun“

„Borgum að sjálfsögðu meiri laun“

Víkurfréttir fjölluðu í síðustu viku um ákvörðun forsvarsmanna United Silicon um að gera ekki sérkjarasamninga við starfsfólk fyrirtækisins. Verksmiðjan verði keyrð á almennum kjarasamningum og gagnrýndi Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, ákvörðunina harðlega í samtali við fjölmiðilinn. Fullyrðir hann að United Silicon komi til með að reka einu stóriðju landsins án sérkjarasamninga.

„Þetta er alveg rétt að við erum í almenna samningssamkomulaginu en við erum orðnir aðilar að Samtökum atvinnulífsins,“ segir Magnús Garðarsson í samtali við DV.

„Við erum þannig búnir að ganga inn í þessa almennu samninga sem eru í gildi þar við stéttarfélögin. Það gengur mjög vel að ráða í verksmiðjuna og þrátt fyrir að það sé núna ekkert atvinnuleysi á Suðurnesjum. Við borgum að sjálfsögðu meiri laun en almennir taxtar kveða á um. Allir okkur verkamenn, um 26 talsins, þeir eru búnir að fá hærri taxta en almenna taxta og það gerum við til að fá besta fólkið.“

Þið hafið þá aldrei lofað því að verksmiðjan myndi skapa „vel launuð störf“?„Það er ekkert sem ég lofaði en við erum reyndar að borga meira en almennu samningskjörin segja til um,“ segir Magnús.

„Samkvæmt samningstaðlinum okkar sem er ÍST 30 þá hefur verktakinn ekki rétt til þess að fjarlægja útbúnað eins og vinnubúðir, rafmagn og annað sem tilheyrir byggingarplássinu. Þetta hefur gengið ágætlega en það varð smá töf þegar við vorum að skipta um byggingarstjóra. Það tafði þann verkþátt um tvær vikur en ég veit ekki hvort ÍAV gerði það viljandi,“ segir Magnús.

„Ríkasta ákvæðið í ÍST 30 er greiðsluskylda aðila og eftir að hún var þverbrotin kröfðumst við þess að fá búnaðinn,“ segir Sigurður.

Fyrir gerðardóm

Deilan verður eins og komið hefur fram útkljáð fyrir gerðardómi. ÍAV fór fram á það við Héraðsdóm Reykjaness og hafa bæði fyrirtækin skipað sinn fulltrúa í dóminn. Héraðsdómur Reykjavíkur skipar þriðja manninn.

„Þetta er nú í lögfræðilegum farvegi og við munum taka þetta í gegnum gerðardómstólinn. Það er byrjað að skipa í hann og málið verður dómtekið núna á mánudaginn,“ segir Sigurður. Magnús hafði ekki heyrt af tímasetningu gerðardómsins þegar blaðamaður náði tali af honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Í gær

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Í gær

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Í gær

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Í gær

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“

Kristján Berg veit betur núna og biðst afsökunar: „Það verður að hlúa betur að fólki með geðræn vandamál“
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“