fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Vodafone að kaupa 365: Fréttablaðið og Vísir ekki inni í hugsanlegum kaupum

Einkaviðræður um möguleg kaup á rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu – Kaupverðið gæti numið 3,4 milljörðum

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 31. ágúst 2016 09:01

Einkaviðræður um möguleg kaup á rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu - Kaupverðið gæti numið 3,4 milljörðum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjarskipti hf. og 365 miðlar hf. hafa undirritað samkomulag um einkaviðræður og helstu forsendur og skilmála kaupsamnings varðandi möguleg kaup á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla hf. Kaupin eru háð ýmsum forsendum og fyrirvörum.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

23 milljarða velta

Undir ljósvakamiðla 365 miðla hf. falla bæði sjónvarps- og útvarpsrekstur félagsins. Helstu sjónvarpsstöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin og á útvarpssviðinu eru það meðal annars Bylgjan, FM957 og X-ið. Í tilkynningunni segir að á fjarskiptamarkaði hafi 365 miðlar 3,4% markaðshlutdeild á farsímamarkaði og 12,6% á internetmarkaði samkvæmt nýjustu tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar. „Gangi viðskiptin eftir verður til öflugt fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi, sem mun bjóða upp á fjölbreytt vöruframboð og enn betri þjónustu, með um 23 milljarða króna veltu á ári,“ segir enn fremur.

Kaupverð gæti numið 3,4 milljörðum

Þá segir að forsendur um kaupverð séu grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum að rekstrarhagnaður hins keypta fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA), að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið allt að 2 milljörðum króna á ársgrundvelli. Kaupverð, miðað við framangreindar forsendur væri allt að 3,4 milljarðar króna; greitt með 1,7 milljörðum króna í reiðufé annars vegar og 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum hf. hins vegar, auk yfirtöku vaxtaberandi skulda að fjárhæð 4,6 milljarðar króna. Við útreikning á fjölda hluta er miðað við gengið 52,5 kr. á hlut sem fæli í sér 16,7% álag á dagslokagengi Fjarskipta hf. þann 30. ágúst 2016. Þar sem viðskiptin myndu fela í sér kaup á ákveðnum eignum og rekstri tækju Fjarskipti hf. m.a. ekki yfir mögulega áhættu í tengslum við skattaleg málefni né leiguskuldbindingar 365 miðla hf. Eignir 365 miðla hf. sem undanskildar eru í viðskiptunum samkvæmt samkomulaginu eru Fréttablaðið og visir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri fréttastofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.

Háð ýmsum skilyrðum

Þar sem aðilar eru samkeppnisaðilar á markaði hefur kaupandi enn sem komið er haft aðgang að takmörkuðum upplýsingum um hið selda. Samkomulag þetta er því háð ýmsum forsendum og skilyrðum, þar á meðal að metinn rekstrarhagnaður og horfur í rekstri byggi á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd áreiðanleikakönnunar, auk samþykkis Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila. Nánar verður gert grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur kaupsamningur kemst á eða ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupunum á fyrri hluta ársins 2017.

Stefán Sigurðsson forstjóri Vodafone:

„Stórt skref hefur nú verið stigið í að skoða möguleg kaup á ljósvakamiðlum og fjarskiptaþjónustu 365 miðla. Við sjáum samþættingu fjarskipta og fjölmiðlaveita víða erlendis þar sem Vodafone í Nýja Sjálandi og Hollandi hafa nú nýverið sameinast leiðandi fjölmiðlaveitum á þeirra markaði. Um spennandi verkefni er að ræða þó of snemmt sé að segja til um hver endanleg niðurstaða verður. Við munum nýta næstu mánuði vel til þess að kanna hvort forsendur kaupanna standist.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi