Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, sem á sæti í peningastefnunefnd bankans, segir Seðlabankann ekki sjá merki um eignabólu hér á landi. Þetta kom fram á fundi nefndarinnar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á mánudag.
„Hreint virði heimilanna hefur aukist töluvert síðustu tvö til þrjú árin. Heimilin telja sig vera orðin ríkari og eru að eyða hluta af því,“ sagði Þórarinn og sagði þetta vera staðreynd þrátt fyrir að fasteignaverð fari nú ört hækkandi.