fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Stærstu kaup Samskipa í áratug

Kristín Clausen
Mánudaginn 29. ágúst 2016 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samskip hafa gengið frá kaupum á norska flutningafyrirtækinu Euro Container Line AS (ECL). Kaupin eru í takt við áform Samskipa um vöxt á þessu markaðssvæði og um leið stærstu kaup félagsins í Noregi frá upphafi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samskipum. Tilkynningin birtist í heild sinni hér að neðan.

Bætt þjónusta

Kaupin á ECL eru gerð með það að markmiði að styrkja stöðu Samskipa í Noregi. Aukin tíðni ferða og meiri hraði eflir þjónustu við viðskiptavini með umsvif í Noregi. Á það sérstaklega við sjávarútveg á svæðinu sem nýtur góðs af betri þjónustu á norsku ströndinni.

Heildar flutningsmagn Samskipa í Noregi vex umtalsvert eða úr 55.000 gámaeiningum (TEU) í 90.000 gámaeiningar sem eykur heildarflutningsmagn félagsins úr 850.000 gámaeiningum í 885.000 gámaeiningar á ári.

Þessi bætta þjónusta eykur frystiflutningsgetu Samskipa á milli Noregs og meginlands Evrópu um 275 til 300 frystigámaeiningar í viku hverri og tengir frystigeymslur félagsins í Álasundi og Rotterdam.

Þessi kaup Samskipa eru enn einn áfanginn á vegferð félagsins í að styrkja stöðu félagsins í Noregi.

Samskip öflug í kælistýrðum flutningum

Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa, segir að samningaviðræður milli félaganna hafi verið leiddar af Ólafi Ólafssyni aðaleiganda Samskipa og Kristian Eidesvik fyrir hönd ECL. „Þessi kaup renna frekari stoðum undir áform Samskipa um að styrkja stöðu sína í Noregi og koma í framhaldi af kaupum félagsins á 50% hlut í Silver Green AS. Við getum nú boðið sjávarútveginum í Noregi betri þjónustu, sambærilega þeirri sem við höfum veitt um áratuga skeið á Íslandi og í Færeyjum.“

Kaupin á ECL koma í kjölfar kaupa Samskipa á helmingshlut í Silver Green í Bergen í Noregi sem rekur 14 frystiskip og er leiðandi á þeim markaði. Helstu markaðssvæði þeirrar starfsemi er Norður-Atlantshafið, Eystrasalt, Norðursjór og Svartahaf. Fimm frystiskipanna eru í eigu Samskipa.

15 ára vaxtarskeið Samskipa í Noregi – Forsaga fjárfestingarinnar

Samskip hafa markvisst styrkt stöðu sína í Noregi með uppbyggingu á fjölþættum flutningalausnum. Má þar nefna 45 feta gámalausnir frá dyrum sendanda til móttakanda, for- og framhaldsflutninga sem og frystiflutninga um heim allan. Fjárfestingar í frystiskipum, gámaskipum, frystigeymslum, hafnarþjónustu og flutningsmiðlun eru í samræmi við stefnu félagsins um aukið þjónustuframboð. Með kaupum á ECL bætast Hamborg og Bremerhaven við þjónustuframboð Samskipa til og frá Noregi.

Kaup Samskipa á ECL leiða til aukinnar samkeppni á þessu markaðssvæði þar sem Samskip verða mun stærri en áður og áhrifameiri keppinautur, til hagsbóta fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila. Aðgengi að flutningsneti Samskipa og aukinn áreiðanleiki fyrir norska útflytjendur er einstök þjónusta sem erfitt er fyrir aðra flutningsaðila að mæta.

Ný siglingaáætlun í Noregi

Eftir kaupin munu Samskip koma við í 14 höfnum og hugsanlega fleirum þegar fram líða stundir. Nýjasta viðbótin er Holla, Ikornes, Maloj og Haugasund í Noregi sem bætast við víðtækt net Samskipa og verða þrjár til fjórar brottfarir í viku frá Rotterdam og Hamborg eftir árstíðabundnu álagi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer

Jón Magnús um þráhyggju virkra í athugasemdum – Bólusetningum kennt um allt sem úrskeiðis fer
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“

Sundlaugargestir æfir yfir fyrirhuguðum breytingum: „Notið peningana í þarfari hluti“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt

Lögmaður fór dagavillt og því þarf að byrja allt málið upp á nýtt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dóttir manns sem var ranglega sakaður um að hafa brotið gegn henni vill vita sannleikann – „Faðir minn jafnaði sig aldrei á þessu“

Dóttir manns sem var ranglega sakaður um að hafa brotið gegn henni vill vita sannleikann – „Faðir minn jafnaði sig aldrei á þessu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fáránlegt athæfi BMW-eiganda í umferðinni – Smaug á milli tveggja bifreiða á tvíbreiðum vegi

Fáránlegt athæfi BMW-eiganda í umferðinni – Smaug á milli tveggja bifreiða á tvíbreiðum vegi