fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sigrún hætt hjá VÍS

– Jakob Sigurðsson ráðinn forstjóri tryggingafyrirtækisins

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. ágúst 2016 09:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Ragna Ólafsóttir er hætt sem forstjóri VÍS en stjórn fyrirtækisins hefur ráðið Jakob Sigurðsson í hennar stað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VÍS.

Jakob er með B.S. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Kellogg stjórnunarskólanum við Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkjunum. Hann starfaði sem forstjóri Promens á árunum 2011-2015, var framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íslenskrar erfðagreiningar frá 2006-2011 og framkvæmdastjóri Alfesca, áður SÍF, frá 2004-2006. Hann gegndi áður stjórnunarstöðum hjá alþjóðlega efnafyrirtækinu Rohm and Haas í Bandaríkjunum og í Evrópu.

„Ég kveð VÍS eftir viðburðarík fimm ár þar sem unnið hefur verið að mörgum stórum verkefnum sem hafa styrkt stöðu félagsins til framtíðar. Ég er stolt af þeim árangri sem náðst hefur á þessum tíma og vil þakka starfsfólki og viðskiptavinum fyrir samstarfið og samfylgdina. Ég óska þeim og VÍS velfarnaðar í framtíðinni,“ segir Sigrún Ragna.

Herdís Fjeldsted, stjórnarformaður VÍS, segist afar ánægð með að hafa fengið Jakob til að taka við stjórnartaumunum.

„Hann hefur mikla og fjölþætta stjórnunarreynslu sem mun nýtast VÍS vel í þeim verkefnum sem framundan eru. Vátryggingamarkaðurinn er í mikilli gerjun og reynsla Jakobs af því að móta og framfylgja skýrri framtíðarsýn og byggja upp sterka liðsheild, mun koma viðskiptavinum félagsins til góða á komandi mánuðum og misserum. Sigrún Ragna tók við félaginu fyrir fimm árum á miklum umbrotatímum og leiddi það meðal annars í gegnum skráningu á almennan hlutabréfamarkað. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka henni fyrir góð störf í þágu VÍS,“ segir Herdís.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“