– Árni Pétur Jónsson verður áfram forstjóri Basko ehf.
Horn III slhf., framtakssjóður í rekstri Landsbréfa hf., hefur keypt 80% hlut í Basko ehf. af félögum tengdum stjórnendum þess og bresku matvöruversluninni Iceland Foods.
Basko ehf. fer með eignarhald á Rekstrarfélagi Tíu Ellefu ehf., Ísland-Verslun hf. og Imtex ehf. Rekstrarfélag Tíu Ellefu ehf. rekur samtals 35 verslanir undir merkjum 10-11 og Háskólabúðarinnar og er einnig móðurfélag Drangaskers ehf. sem rekur fjögur kaffihús undir merkjum Dunkin Donuts. Þá rekur félagið hamborgarastað undir nafninu Bad Boys. Ísland-Verslun hf. rekur þrjár matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu undir merkjum Iceland og Imtex ehf. annast innflutning og rekur vöruhús fyrir Basko samstæðuna.
Samkvæmt tilkynningu Landsbréfa hefur afhending hlutafjárins hefur farið fram en kaupverð er trúnaðarmál. Árni Pétur Jónsson verður áfram forstjóri Basko ehf. og er eftir kaupin næst stærsti hluthafi félagsins.