fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Fjárfestingabankinn Kvika hagnast um 378 milljónir

Þóknanatekjur bankans lækkuðu á milli árshelminga – Rekstrarkostnaður minnkaði um 13%

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. ágúst 2016 19:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hagnaður fjárfestingabankans Kviku, sem er í eigu Lífeyrissjóðs verslunarmanna og ýmissa einkafjárfesta, nam 378 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins.

Í afkomutilkynningu frá bankanum kemur fram að arðsemi eiginfjár hafi verið 12,3% á tímabilinu og hreinar rekstrartekjur voru 2.164 milljónir króna samanborið við 2.535 milljónir á seinni helmingi síðasta árs. Þóknanatekjur lækka hins vegar nokkuð milli tímabila sem skýrist einkum af árstíðabundnum sveiflum í tilteknum tekjuliðum. Rekstrarkostnaður nam 1.668 milljónum króna á fyrri hluta árs 2016 og lækkaði í takt við áætlun um 13% frá seinni helmingi árs 2015 að teknu tilliti til kostnaður við samruna MP banka og Straums fjárfestingabanka sem kláraðist í lok júní 2015.

„Ánægjulegt“ uppgjör

Í tilkynningu frá bankanum er haft eftir Sigurði Atla Jónssyni, forstjóra Kviku, að það sé „ánægjulegt“ að kynna uppgjör bankans fyrir fyrri hluta árs 2016. „Kvika hefur náð þeim rekstrarlegu markmiðum sem sett voru við sameiningu Straums fjárfestingabanka og MP banka. Að baki er vel heppnaður samruni sem grundvallaðist á virðingu og samvirkni þeirra sem að honum komu. Afkoma Kviku er góð og í samræmi við áætlanir, eftir aðeins eitt ár í rekstri. Fjárhagslegur styrkur bankans er mikill. Við byggjum á þeim grunni og nýtum þekkingu og færni starfsfólks Kviku til að sækja fram.

Það er ánægjulegt að Ísland verði á ný hluti af alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Kvika er tilbúin fyrir þær breytingar, enda hefur bankinn verið með umsvifamikla erlenda fjárfestingaþjónustu fyrir viðskiptavini sína undanfarin ár. Þegar vel er að verkum staðið og hugsað er til lengri tíma, er ekki hægt annað en að horfa jákvætt til morgundagsins.“

Umsvifamestur í skuldabréfum

Í lok júní 2016 námu heildareignir samstæðu Kviku 77.825 milljónum króna samanborið við 61.614 milljónir króna í árslok 2015 og nemur hækkunin 26% á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina námu 23 milljörðum króna í lok júní 2016. Almenn innlán og peningamarkaðsinnlán jukust um rúma 14 milljarða króna, eða 30%, á árinu. Þá var eiginfjárhlutfall bankans í lok júní 18,0% samanborið við 23,5% í árslok 2015 og er lækkunin sögð í samræmi við áætlun og skýrist að miklu leyti af lækkun hlutafjár sem samþykkt var á hlutahafafundi fyrr á árinu.

Fram kemur í tilynningu bankans að Kvika hafi verið umsvifamest í viðskiptum með skuldabréf á Nasdaq Iceland á fyrri hluta árs 2016. Var heildarvelta Kviku með skuldabréf 329 milljarðar króna eða um 22% af heildarviðskiptum tímabilsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu