Í dag fimmtudaginn 25. ágúst verður Sæbraut fræsuð og malbikuð til suðurs. Vinnusvæðið byrjar við gatnamót við Holtaveg og nær yfir gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðavog.
Hægri akrein í suður verður lokuð og umferð hleypt um vinstri akrein framhjá. Vinstri og hægri beygjuakreinar af Sæbraut inn á Skeiðavog verða lokaðar. Eins verða vinstri beygjuakreinar inn á Sæbraut af Skeiðavogi og Kleppsmýrarvegi lokaðar. Lokanir og hjáleiðir verða merktar meðan á framkvæmd stendur samkvæmt viðlögðu lokunarplani.
Áætlað er að framkvæmdin standi yfir milli klukkan 5:00 og 17:00 í dag.
Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin er þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Í dag 25. ágúst verður unnið við girðingu á miðeyju á Hafnarfjarðarvegi í Engidal.
Af þeim sökum verður þrenging úr tveimur akreinum í eina frá kl. 10:00 og fram eftir degi. Hraði er takmarkaður við 50 km/klst. á vinnusvæðinu.
Dagana 25 – 26 ágúst verður unnið við brú yfir Hafnarfjarðarveg við Hamraborg.
Af þeim sökum verður þrenging úr tveimur akreinum í eina frá kl. 09:00 og fram eftir degi. Hraði er takmarkaður við 50 km/klst. á vinnusvæðinu.