fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Útlendingastofnun leitar leiða til að útvega húsnæði

45 manns hafa sótt um vernd í þessum mánuði – Leggja kapp á að tryggja fullnægjandi aðstæður

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 24. ágúst 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vegna hins mikla fjölda fólks sem óskað hefur eftir alþjóðlegri vernd hér á landi á undanförnum mánuðum eru húsnæðis- og þjónustuúrræði Útlendingastofnunar og samstarfsaðila fyrir umsækjendur nú nálægt því að vera fullnýtt.“ Þetta segir í tilkynningu frá Útlendingastofnun.

Þar kemur fram að aukning í umsóknum undanfarna daga hefur gert að verkum að nauðsynlegt sé að leita frekari úrræða og aðstöðu hvað þetta varðar. Allt kapp er lagt á að tryggja fullnægjandi aðstæður í því húsnæði sem fyrir er og að þjónusta sé viðunandi.

Leita leiða til að útvega húsnæði

Á grundvelli sérstakra þjónustusamninga við Útlendingastofnun hafa Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbær og Reykjanesbær sinnt þjónustu- og húsnæðismálum við að jafnaði um 180 til 190 umsækjendur um alþjóðlega vernd á mánuði.

Útlendingastofnun hefur undanfarna mánuði haft svipaðan fjölda í húsnæði og þjónustu eða um 170 umsækjendur að jafnaði.

Útlendingastofnun og innanríkisráðuneytið, í samvinnu við þau sveitarfélög sem þegar hafa með höndum þessa þjónustu, leita nú leiða til að útvega fleiri húsnæðis- og þjónustuúrræði, meðal annars hjá öðrum sveitarfélögum á landinu.

Árið 2016 er metár

Á fyrstu sjö mánuðum ársins sóttu 316 manns um alþjóðlega vernd hér á landi og það sem af er ágústmánuði hafa 45 sótt um, þar af um 20 manns síðastliðna fimm daga. Árið 2016 er því þegar orðið metár hvað varðar fjölda umsókna um vernd en allt árið í fyrra voru umsækjendur 354.

26% umsækjenda á fyrstu sjö mánuðum ársins komu frá Albaníu. Alls telja borgarar ríkja Balkanskagans 42% umsókna. Er þetta hlutfall í takt við tölfræði ársins 2015. 364 málum varðandi alþjóðlega vernd var lokið á fyrstu sjö mánuðum ársins hjá Útlendingastofnun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu