Búist er við blíðviðri í Reykjavík í dag og því óhætt að fullyrða að sumarið sé langt frá því að vera búið. Stefnir hitinn í allt að 20 gráður.
Hlýjast verður sunnanlands í dag samkvæmt vef Veðurstofu en þó má búast við sól og blíðskaparveðri víða um landið.
Spáð er að 14 til 20 stiga hita á höfuðborgarsvæðinu í dag en rigning verður í nótt og heldur svalara á morgun. Skýjað verður köflum á morgun og stöku skúrir. Á miðvikudag má síðan aftur búast við heiðskíru veðri þar sem hitinn verður allt að 16 gráður.