Í dag verður Miklabraut malbikuð til austurs. Vinnusvæðið byrjar við gatnamót við Lönguhlíð og nær að gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Ein akrein verður lokuð í einu og umferð hleypt framhjá. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að áætlað sé að vinnan standi yfir til klukkan 17 í dag en framkvæmdir hófust klukkan 07 í morgun.
Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin er þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum, segir í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.