fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Þrítug hjón unnu 260 milljónir: Konan leitaði að falinni myndavél þegar hún fékk fréttirnar

Ætla að láta draum um stærra húsnæði rætast fljótlega

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 28. júlí 2016 11:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var sérstaklega ánægjulegt að taka á móti ungu hjónunum sem komu til okkar í Getspá í morgun með miðann góða úr Víkingalottóinu í gær en á honum var vinningur upp á 261.876.840 krónur sem er jafnframt stærsti happdrættisvinningur íslandssögunnar,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Miðinn var keyptur í N1 við Stórahjalla í Kópavogi sem hjónin ungu segja vera lottósjoppuna sína. Þau gerðu sér sérstaka ferð til að kaupa þennan 10 raða sjálfvalsmiða. „Það er gaman að segja frá því að þetta er í annað skiptið sem 1. vinningur í Víkingalottóinu kemur á miða sem er keyptur á þessum sölustað. Fyrra skiptið var í október 2012 en þá kom þar vinningur upp á rúmar 103 milljónir,“ segir í tilkynningunni.
Hjónin hafa verið dugleg að kaupa Víkingalottó undanfarið og fyrir nokkrum mánuðum fengu þau 5 rétta sem gaf þeim 90 þúsund krónur. Í tilkynningunni segir að hjónin hafi talið að þar með væri „lottóheppnin“ búin en svo reyndist aldeilis ekki vera.

„Eins og svo margir aðrir fengu þau sér bíltúr í veðurblíðunni í gær og keyrðu meðal annars fram hjá fallegum húsum og létu sig dreyma um að geta keypt sér rúmbetra húsnæði en þau búa í lítilli íbúð í dag. Ekki gat þeim dottið í hug að nokkrum tímum seinna yrðu þau orðin margmilljónamæringar en það var ekki fyrr en um kvöldið að eiginmaðurinn fór yfir miðann og sá hvers kyns var. Hann kallaði á konuna en gat varla sagt henni fréttirnar út af stressi, hún trúði honum hins vegar ekki og leitaði um allt að falinni myndavél sem hún var alveg viss um að leyndist þarna einhversstaðar,“ segir í tilkynningunni.

„Það var svo ekki mikið um nætursvefn, hugurinn á flugi og áhyggjur af því að týna miðanum, hann var settur í veski sem var geymt innan seilingar og gengið úr skugga um að útidyrahurðin væri örugglega læst. Ungu hjónin gátu lítið tjáð sig um framtíðarhorfur, þau eru ákveðin í að fara í fjármálaráðgjöf á vegum Getspár en draumurinn er stærra húsnæði verður látinn rætast fljótlega. Starfsfólk Íslenskrar getspár óskar þessum heppnu ungu hjónum innilega til hamingju með þennan glæsilega vinning.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“