fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Aukin ásókn erlendra fjárfesta í skuldir íslensku bankanna

Ávöxtunarkrafan á skuldabréf bankanna í evrum lækkað mikið á árinu – Fór lægst niður í 200 punkta

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. júlí 2016 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ávöxtunarkrafan á skuldabréfaútgáfur íslensku bankanna á erlendum fjármagnsmörkuðum hefur lækkað mikið á undanförnum mánuðum en sé horft til viðskipta á eftirmarkaði um þessar mundir þá eru bréfin að ganga kaupum og sölum á kjörum sem jafngilda um 2,2% álagi á millibankavexti. Þannig hefur ávöxtunarkrafan á útistandandi skuldir bankanna í evrum lækkað um 50 punkta – 0,5 prósentustig – að meðaltali það sem af er þessu ári, samkvæmt tölum frá Bloomberg-fréttaveitunni. Íslensku bankarnir ættu því að óbreyttu að geta fjármagnað sig á alþjóðlegum lánamörkuðum á talsvert hagstæðari kjörum borið saman við síðustu skuldabréfaútgáfur þeirra.

Þessi jákvæða þróun gæti að sama skapi verið vísbending um að erlendir aðilar kynnu að vera áhugasamir um að fjárfesta í hlutabréfum íslenskra banka á komandi misserum en kröfuhafar Kaupþings, sem heldur utan um 87% eignarhlut í Arion banka, hafa í hyggju að selja hluta af eign sinni í bankanum á næstunni. Þar er meðal annars horft til þess að kanna áhuga erlendra fjárfesta á að kaupa einhvern hluta í bankanum.

Meiri lækkun en hjá ríkinu

Á sama tíma og erlendir fjárfestar sækja í auknum mæli í skuldabréf á íslensku bankanna – Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankann – þá hefur ávöxtunarkrafa á sambærilegum skuldabréfum evrópskra banka lækkað lítið sem ekkert yfir sama tímabili. Sú þróun þarf ekki að koma á óvart enda óttast margir fjárfestar hvaða afleiðingar fjármögnunarvandi sumra evrópskra banka, fyrst og fremst þýska bankarisans Deutsche Bank og ítalskra banka, kunni að hafa fyrir fjármálamarkað álfunnar. Aðalhagfræðingur Deutsche Bank lét nýlega hafa það eftir sér að hann teldi að það þyrfti um 150 milljarða evra til að rétta við bága eiginfjárstöðu þeirra evrópsku banka sem standa hvað höllustum fæti.

Þá vekur það einnig eftirtekt að ávöxtunarkrafan á erlendar skuldir íslensku viðskiptabankanna hefur á síðustu mánuðum fallið mun meira en krafan á 750 milljóna evra skuldabréf íslenska ríkisins sem var gefið út árið 2014 og er á gjalddaga í júlí 2020. Erlend vaxtakjör banka hér á landi taka mið af áhættuálagi íslenska ríkisins hverju sinni. Þannig er ljóst að frekari hækkun á lánshæfi ríkissjóðs, eins og væntingar eru um, ætti að skapa forsendur fyrir því að íslensku bankarnir geti sótt sér erlent lánsfjármagn á enn hagstæðari kjörum. Í kjölfar þess að íslensk stjórnvöld tilkynntu um áætlun sína til að leysa 320 milljarða aflandskrónuvandann greindi matsfyrirtækið Moody’s frá því að það hefði ákveðið að það muni á næstunni endurmeta lánshæfi Íslands með frekari hækkun í huga. Bætt aðgengi bankanna að erlendu fjármagni á lágum vöxtum gefur þeim í kjölfarið tækifæri til að greiða niður lán á óhagstæðari kjörum og þá ættu íslensk fyrirtæki sem þurfa á erlendu lánsfé að halda að njóta góðs af þessari þróun í formi lægri fjármögnunarkostnaðar.

Greitt inn á eldri lán

Ávöxtunarkrafan á skuldabréf íslensku bankanna lækkaði mjög skarpt á fyrstu mánuðum ársins og fór lægst niður í um 200 punkta á millibankavexti í lok apríl, samkvæmt tölum frá Bloomberg-fréttaveitunni. Hækkaði krafan lítillega eftir það en í lok síðustu viku stóð hún sem fyrr segir í um 220 punktum og voru útistandandi skuldabréf allra bankanna að ganga kaupum og sölum á eftirmarkaði á nánast sama verði. Arion banki tilkynnti síðast þann 19. apríl að hann hefði gefið út skuldabréf til þriggja ára að fjárhæð 300 milljónir evra, eða sem nemur um 42 milljörðum íslenskra króna, og voru bréfin á þeim tíma seld á kjörum sem jafngilda 2,7% álagi á millibankavexti. Var þetta önnur útgáfa bankans í evrum og fór stærstur hluti lánsins – um 31 milljarður króna – í að greiða inn á skuldabréf í eigu Kaupþings sem ber hærri vexti.

Landsbankinn og Íslandsbanki tilkynntu síðast um útgáfu skuldabréfa í evrum í árslok 2015 og voru þau bréf seld til fjárfesta á kjörum sem jafngiltu 290 og 295 punkta álagi á millibankavexti í evrum. Útgafa Landsbankans, sem nam samtals 300 milljónum evra, fór í að fyrirframgreiða inn á skuldabréf bankans við slitabú gamla Landsbankans (LBI) sem voru á gjalddaga í október 2016 og 2018. Samtals nemur höfuðstóll gjaldeyrisskuldar bankans við LBI í dag um 145 milljörðum króna. Eftir að Landsbankinn hefur greitt upp skuldabréfið sem er á gjalddaga í október 2018 fer vaxtaálagið stighækkandi og verður á bilinu 3,5% til 4,05% vegna gjalddaga á árunum 2020 til 2026. Landsbankinn hefur því ríka hagsmuni af því að endurfjármagna erlendar skuldir bankans núna þegar útlit er fyrir að íslensku bönkunum bjóðist lánsfé á alþjóðlegum fjármagnsmörkunum á hagstæðari kjörum en áður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga