Fyrr í dag greindi DV frá því að hjóli forsetaframbjóðandans Andra Snæs Magnasonar var stolið fyrir framan heimili hans síðustu nótt.
Andri Snær lýsti eftir hjólinu á Facebook og í kjölfarið sögðu fjölmiðlar frá því að þess væri sárt saknað. Nú síðdegis greindi Andri Snær hinsvegar frá því að hjólið væri fundið.
Glöggur lesandi Vísis fann hjólið í Hæðargarðinum í Reykjavík. Andri Snær er að vonum ánægður og þakkar kærlega fyrir sig.