fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Lögreglan varar fólk við: „Svindl af þessu tagi getur valdið verulegum óþægindum og hugarangri“

Grunnreglan er að borga aldrei neitt, segir lögregla

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 29. júní 2016 20:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar íslenskan almenning við enn einu svindlinu sem einkum smá fyrirtæki og einyrkjar verða fyrir barðinu á.

Í tilkynningu sem lögreglan setti á Facebook-síðu sína í dag kemur fram að svindlið fari fram með þeim hætti að fyrirtækjum og einyrkjum einkum eru send bréf sem líta út fyrir að vera hálf opinber. Er þeim boðið að skrá sig á evrópska síðu og er búið að fylla út hluta upplýsinganna. Allt virðist mjög formlegt og einfalt.

Gefum lögreglu orðið:

„Mjög snemma í bréfinu koma orðin „The basic entry and the update are free of charge.“ Með í bréfinu fylgir umslag og eyðublað til að uppfæra upplýsingar og lykilatriðið er að það á að gefa upp VSK númer.

Fyrirtækið hefur komið sér upp virkri vefsíðu og tengiupplýsingar eru réttar að vissu marki en þjónustan er engin og það er engin ástæða til þess að láta skrá sig þar. En á yfirborðinu virðist allt vera slétt og fellt. Þar er hálf sagan sögð. Því í smáa letri eyðublaðsins er verið að „kaupa“ auglýsingu fyrir 677 Evrur (100.291 kr.). „The adverisment costs amount to 677 Euro per year.“ Það sem mun gerast ef einhver fellur í þá gryfju að endursenda þetta eyðublað er að viðkomandi fær rukkun fyrir 677 Evrur og síðan lögfræðileg innheimtubréf. Það að fylla út VSK númer er flokkað sem breyting á skráningu (sem kostar) og með því að endursenda eyðublaðið er kominn bindandi samningur,“ segir lögreglan.

Þá kemur fram í tilkynningu lögreglu að ef viðkomandi hringir þá geti vel verið að honum sé boðinn afsláttur, stundum verulegur eða allt að 70 prósent og ef viðkomandi ákveður að greiða sé hann ekki sloppinn. Hann fái síðar aðra rukkun með þeim rökum að með fyrstu greiðslu hafi myndast bindandi samningur.

„Grunnreglan er að aldrei borga neitt. Svindl af þessu tagi getur valdið verulegum óþægindum og hugarangri enda er mikið gert til þess að þrýsta eftir greiðslu þó ekki sé vitað til þess að neinn hafi verið lögsóttur eftir slíkri greiðslu en því verður hótað og aukin flækjustig eins og stefna í Þýskalandi koma upp. Upphafleg útgáfa þessa svindls var DAD Deutscher Adressdienst GmbH. Ef vel er lesið í bréfið þá kemur DAD GmbH fyrir í texta þessara bréfa. Þetta form svindls hefur verið landlægt sérstaklega í Þýskalandi, Austurríki og Sviss en þar er innbyggt í þjóðarvitund að greiða alla reikininga,“ segir lögreglan sem hefur þessi ráð fyrir fólk:

„Besta leiðin til að varast svona er að svara aldrei slíkum bréfum. Gerið sjálf könnun á netinu um fyrirtækin og ekki treysta á neina tengla sem ykkur eru sendir eða gefnir upp. Ræðið þetta líka við félaga og vini. Þið megið líka deila þessum pósti eða deila á þá sem þið teljið að hafi gagn af því.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“