fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Icelandair bætir við tveimur aukaferðum

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 28. júní 2016 11:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icelandair hefur bætt við áætlun sína tveimur aukaflugum til Parísar vegna leiks Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum EM 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar segir að flogið verður með 183 sæta Boeing 757 vél Icelandair frá Keflavíkurflugvelli síðdegis á föstudag og síðdegis á laugardag. Jafnframt verður bætt við tveimur flugum frá París á mánudagsmorgni og þriðjudagsmorgni. Þessi flug verða hluti af almennu leiðakerfi Icelandair og eru komin í sölu á vef icelandair.

Ef þörf er á mun Icelandair einnig leigja inn breiðþotu og bæta við fleiri flugum til Parísar fyrir leikinn í París.

Þá er rétt að taka fram að Icelandair mun ekki hafa tök á að bjóða upp á pakkaferðir með aðgöngumiðum, gistingu osfrv. í tengslum við leikinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu