Tveir voru með allar tölurnar réttar í risapottinum í lottóinu í kvöld og fær hvor um sig tæpar 55 milljónir króna. Potturinn var vel yfir hundrað milljónir króna í kvöld og voru margir sem freistuðu þess að landa þeim stóra.
Svo fór að tveir höfðu heppnina með sér og skipta þeir því með sér áttföldum potti.
Fær hvor vinningshafi 54.823.710 króna í sinn hlut. Miðarnir góðu voru keyptir í Álfinum, Borgarholtsbraut 19 í Kópavogi og 10-11 við Kleppsveg í Reykjavík.
Átta skiptu bónusvinningnum á milli sín og fær hver 138.120 krónur. Miðarnir voru keyptir í Gullnesti við Gylfaflöt, 10-11, Suðurfelli 4 í Reykjavík, Daníelsbita í Mosfellsbæ, Söluskálanum Björk á Hvolsvelli, Nielsen í Hveragerði, Álfinum, Borgarholtsbraut 19, Kópavogi og 2 á lotto.is
Einn var með allar Jókertölurnar í réttri röð og fær hann 2.000.000 fyrir það. Miðinn var seldur í Kvosinni, Aðalstræti 6 í Reykjavík.