Kynnisferðir hafa keypt strætisvagna sem nýta á á höfuðborgarsvæðinu. Einn af þessum vögnum rann stjórnlaust af bílastæði við Shellskálann á Egilsstöðum. Endaði hann ferð sína á tré í garði hinum megin við götuna. RÚV greinir frá.
Þar kemur fram að vagninn var mannlaus. Talið er að hann hafi ekki verið í bremsu. Þá sakaði engan. En vagninn er einn af nokkrum sem hafa komið til landsins með Norrænu til Seyðisfjarðar, þaðan sem þeim verður ekið til Reykjavíkur.