Guðni með afgerandi forystu þegar talin hafa verið tæp 44 þúsund atkvæði
„Ég held að Guðni muni hafa þetta. Ég óska honum til hamingju með það og hans fjölskyldu og óska honum farsældar,“ sagði Davíð Oddsson í kosningasjónvarpi RÚV.
Flest bendir til þess að Guðni Th. Jóhannesson verði næsti forseti Íslands og virðist Davíð vera búinn að sætta sig við að Guðni hafi haft betur. „Ég myndi álíta svo á þessum tölum að Guðni myndi hafa þetta. Ég held það,“ sagði Davíð.
Þegar búið var að telja 43.724 atkvæði var Guðni með 38,2 prósenta fylgi en Halla Tómasdóttir með 30,4 prósenta fylgi. Andri Snær Magnason er í þriðja sæti með 13,7 prósenta fylgi og Davíð Oddsson er fjórði með 12,5 prósent fylgi. Aðrir eru með minna en fimm prósenta fylgi.
Sjálfur vill Guðni ekki hrósa sigri því enn ætti eftir að telja fjölmörg atkvæði. Hann ætlar ekki að fagna fyrr en það er 100% öruggt að hann vinni.
Halla sagðist vera ánægð með sinn árangur samkvæmt þessum fyrstu tölum og sagði að fylgi hennar væri meira en hún átti von á. „Ég er þakklát fyrir stuðninginn. Ég ætla að vera bjartsýn þangað til að við komum í mark.“