Stjórn Strætó hafnaði tillögu um fríar strætóferðir á kjördag
„Við fengum minnisblað frá framkvæmdastjóra sem lagði mat á kostnaðinn og niðurstaðan var að okkur finnst þetta ágætis hugmynd en að sveitarfélögin eigi frekar sjálf greiða fyrir fríar strætóferðir þar sem þetta er ekki inni í okkar kostnaðaráætlun,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, stjórnarformaður Strætó bs., um tillögu tveggja bæjarfulltrúa í Kópavogi um að fyrirtækið byði fríar strætóferðir á kjördag til að efla kosningaþátttöku ungs fólks.
Pétur Hrafn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Karen Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, skoruðu á stjórn Strætó í bókun á bæjarráðsfundi í lok maí. DV fjallaði þá um málið og að Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, hefði í kjölfarið lagt fram eftirfarandi bókun: „Það er ekkert frítt í henni veröld“.
„Eitt af stóru verkefnunum er að ná upp kostnaðarhlutdeildinni þar sem farþegatekjur duga einungis fyrir 30% af heildarkostnaði Strætó en markmiðið er að ná 40%. Við ákváðum því að hvetja sveitarfélögin sjálf til að bjóða fríar ferðir sé áhugi fyrir slíku,“ segir Bryndís í samtali við DV.