„Að þjóð með 330 þúsund íbúa skuli vera í 16-liða úrslitum á sínu fyrsta stórmóti er afrek sem vert er að fagna,“ segir blaðamaður BBC en erlendir miðlar hafa svo sannarlega ekki farið hóflega í fyrirsagnirnar í kjölfar sigurleiks Íslendinga á EM fyrr í dag.
„Liðið hefur sýnt þá varnarvinnu og skipulag sem búast má við af liði sem þjálfað er af Lars Lagerbäck, fyrrum þjálfara Svía,“ segir jafnframt í grein BBC.
Þá segir í grein Guardian að Arnór Ingvi hafi með marki sínu „haldið áfram ævintýri Íslands á EM.“ Á vef MailOnline segir:„Enski boltinn hefur eignast nýja hetju, og hann heitir Arnór Ingvi Traustason. Reynið að koma því nafni fyrir á treyju.“
Þá fara skandinavískir miðlar ekki leynt með stuðning sinn við íslenska liðið og er sigur Íslands til að mynda fyrsta frétt í netútgáfu danska blaðsins Politiken þar sem „fórnfýsi, baráttuandi og trú á eigin getu“ er sögð einkenna leik íslensku landsliðsmannanna. „Íslenskt eldgos kemur litla liðinu áfram – Spila við England“ – segir í fyrirsögninni og þá er fyrirsögn norska TV2: „Íslenskar hetjur sökktu Austurríki.“
„Þvílíkt ævintýri fyrir Ísland. Liðið sem er allt að því forvitnilegt innslag í keppni með stórum liðum erfiðaði, dröslaðist áfram og barðist áfram úr riðlakeppninni með frammistöðu sem maður verður að dást að,“ segir á vef Jyllandsposten.
Þá er fyrirsögn sænska Aftonbladet: „Afrek Íslendinga – Komnir í útsláttarkeppnina“ og kemur fram að Ísland hafi unnið Austurríki eftir „mikið drama.“