Vinnan hófst klukkan 9 í morgun og stendur yfir fram eftir degi
Malbikað verður á Kringlumýrarbraut í dag frá strætóstoppistöð við Kringluna að Háaleitisbraut. Unnið verður á akrein lengst til hægri. Einnig verður afrein frá Miklubraut að Grensásvegi malbikuð, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Vinnan hófst klukkan 9 í morgun og stendur yfir fram eftir degi.
Vegagerðin greinir einnig frá því að vegslóðar á hálendinu séu afar viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Í verndarskyni er akstursbann á mörgum hálendisvegum.