Tveir menn sitja enn í varðhaldi vegna líkamsárásar á Akureyri um miðjan apríl. RÚV hefur eftir Gunnari Jóhannssyni, rannsóknarlögreglumanni á Akureyri, að rannsókninni miði vel en mennirnir eru grunaðir um að hafa gengið í skrokk á manni eftir að hafa dregið hann upp úr heitum potti við hús á Akureyri. Þeir eru sagðir hafa skilið hann eftir á víðavangi. Lögreglan hefur sagt að málsaðilar séu lögreglunni í bænum vel kunnugir. Gæsluvarðhaldið rennur út í dag, þriðjudag, en ekki liggur fyrir hvort krafist verður framlengingar. Frá lögreglunni fer málið til ákæruvaldsins.