Magnað viðhorf Brryans Stewart
Brryan Stewart var aðeins tíu mánaða gamall þegar faðir hans sprautaði hann með HIV-smituðu blóði. Ástæðan var sú að hann vildi ekki greiða barnsmóður sinni meðlag og taldi að öruggasta leiðin til þess væri að ganga frá honum.
Brryan, sem var skírður Brian Steward, segir sögu sína í viðtali við GQ-tímaritið. Óhætt er að segja að faðir hans hafi stefnt velferð sonar síns í hættu þegar hann ákvað að sprauta hann með HIV-smituðu blóði. Fyrir 25 árum voru lyf gegn HIV ekki jafn góð og þau eru í dag og því var óttast að Brryan myndi ef til vill ekki verða gamall.
Viðhorf þessa 25 ára Bandaríkjamanns gagnvart þeim hindrunum sem orðið hafa á vegi hans á undanförnum árum – og munu eflaust verða á komandi árum – hafa vakið athygli. „Ég gæti annað hvort setið hér og verið reiður yfir þessum aðstæðum, en ég gæti líka setið hér og brosað yfir því að vera til,“ segir hann.
Faðir hans, sem einnig hét Brian Stewart, starfaði á sjúkrahúsi í St. Louis þegar hann komst yfir HIV-smitað blóð sem hann sprautaði í líkama sonar síns. Að lokum komst upp um hann og fór svo að hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 1998.
Sjúkdómurinn var fljótur að ágerast enda leið nokkur tími þar til læknar áttuðu sig á að Brryan væri með HIV-veiruna. Litlu mátti muna að Brryan léti lífið af völdum sjúkdómsins, en hann gerði það að verkum að Brryan er aðeins með tuttugu prósenta heyrn og þarf að taka lyf á hverjum degi til að halda veirunni í skefjum. Þrátt fyrir það er Brryan ekki reiður föður sínum.
„Ég bið fyrir því að faðir minn fái góða sáluhjálp,“ segir hann og bætir við að hann beri engar sérstakar tilfinningar, hvorki góðar né slæmar, til föður síns sem nú situr á bak við lás og slá. „Ég finn ekki fyrir neinum tilfinningum í hans garð. Ég veit ekki hvað hann hugsar eða hvað hann gerir. Ég hef fyrirgefið honum og reyni að lifa mínu lífi og sýna hvað í mér býr,“ segir Brryan sem gert hefur það að starfi sínu að halda fyrirlestra til að fræða fólk um HIV-sjúkdóminn.