fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Enginn var með leyfi fyrir heimagistingu

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 27. maí 2016 13:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum og tveir starfsmenn frá embætti ríkisskattstjóra heimsóttu í vikunni nokkra staði þar sem boðið er upp á heimagistingu samkvæmt upplýsingum á vefnum Airbnb.com.

Í dagbók lögreglu kemur fram að erindið hafi verið að athuga hvort tilskilin leyfi væru til staðar sem og bókhaldsgögn yfir reksturinn. Í þeim tilvikum þar sem húsráðendur voru til svara reyndust hvorki vera fyrir hendi leyfi né bókhald.

Umræddar heimsóknir lögreglu og ríkisskattstjóra eru liður í að fylgjast með því að þeir sem bjóða upp á heimagistingu í umdæminu fari að lögum og reglum þar að lútandi. Í framhaldinu verður fylgst með þeim stöðum sem þegar hafa verið heimsóttir og jafnframt farið á fleiri staði í sama tilgangi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus

Tveir nýir meðeigendur hjá Expectus