fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Næsti forseti þarf Facebook og fjármagn

Verðmiðinn á forsetastólnum áætlaður um 20 milljónir nú – Samskiptamiðlar aldrei mikilvægari

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. maí 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Facebook og fjármagn munu hafa mikið að segja í komandi kosningabaráttu frambjóðenda til forseta Íslands. Samskiptamiðillinn er að mati sérfræðinga og aðstandenda framboða í mörgum tilfellum lykilatriði fyrir frambjóðendur til að koma sjálfum sér og skilaboðum sínum á framfæri enda sækja Íslendingar fréttir sínar þangað í stórum stíl. Þeir sérfræðingar og álitsgjafar sem DV hefur rætt við eru flestir sammála um að startkostnaður við forsetaframboð sé ekki undir 10 milljónum króna. Þeir sem DV hefur rætt við áætla að kostnaður vegna stærstu og helstu framboðanna til forseta nú muni nema á bilinu 15 til 20 milljóna króna. Líklega nær síðarnefndu upphæðinni. 20 milljónir kunni því að reynast verðmiðinn á forsetastólnum að þessu sinni.

Sú upphæð er raunar töluvert undir því þaki sem sett var á kostnað vegna forsetaframboðs árið 2010 og miðast við tiltekna fjárhæð á hvern íbúa á kjörskrá fyrir landið allt. Þetta þak er í dag rúmar 37 milljónir króna. Þá á það sama við um fjárframlög einstaklinga og lögaðila og í öðrum kosningum, þær mega vera 400 þúsund krónur að hámarki á hvern og einn.

Til samanburðar þá var ekkert slíkt þak til staðar fyrir forsetakosningarnar 1996, þegar Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig fyrst fram. Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins, birti í vikunni uppreiknaðan kostnað við framboðin fjögur þá á verðlagi apríl 2016. Miðað við það nam kostnaður Ólafs Ragnars 102 milljónum og allra til samans alls 329 milljónum.

Í síðustu forsetakosningum árið 2012 var framboð Þóru Arnórsdóttur það dýrasta. Kostnaðurinn við það nam 17,3 milljónum að núvirði miðað við útreikninga Markaðarins. Þóra hlaut rúm 33 prósent atkvæða. Þeir sem til þekkja og DV ræddi við áætla að kostnaður þeirra sem helst ætla að gera atlögu að forsetaembættinu í kosningunum nú muni eyða svipaðri fjárhæð.

DV tók stöðuna hjá fjórum framboðum sem mælst hafa með mest fylgi í þeim könnunum sem birst hafa að undanförnu og spurði fólkið í fremstu víglínu út í fjármálin og hvort framboðin verði hefðbundin í auglýsingataktík sinni eða meira á hinni nýju línu Facebook og netsins.


Guðni Th. Jóhannesson

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

– Fylgjendur á Facebook: 16.567
– Fylgi skv. nýjustu könnun: 67,1%

„Við erum með fjárhagsáætlun sem gerir ráð fyrir að við leyfum okkur ákveðna hluti, eftir því sem peningarnir koma inn,“ segir almannatengillinn Friðjón Friðjónsson, sem er einn talsmanna framboðs Guðna Th. Jóhannessonar. Friðjón bendir á að framboð Guðna hafi borið brátt að og því ekki gefist langur tími til undirbúnings eða skipulags. En þar sem söfnun standi enn yfir sé ekki hægt að segja hversu miklu áætlað sé að eyða. „Við erum bara að safna.“

Og sú söfnun gengur vel. Friðjón segir að það hafi verið eins með fjáröflun og sjálfboðaliða, stuðning og allt annað varðandi framboð Guðna. „Viðtökur eru mjög góðar, en við erum ennþá langt frá okkar æðstu markmiðum. Vefsíðan kom upp í síðustu viku með þeim möguleika að taka á móti framlögum og við vorum að vekja athygli á því í liðinni viku. Þetta er allt í mótun.“

Aðspurður um auglýsingataktík segir Friðjón að framboð Guðna hafi verið að nota Facebook mjög markvisst. Fylgi Guðna á Facebook er í samræmi við það fylgi sem hann mælist með í könnunum, hann á langflesta fylgjendur af Facebook-síðum frambjóðenda.

„Við notum Facebook mjög markvisst í auglýsingar og til að vekja athygli á viðburðum og öðru slíku. Við munum nota target-aðar auglýsingar þar út frá svæðum og öðru slíku þegar það á við. Ég á síður von á því að við verðum mikið í þessum hefðbundnu auglýsingamiðlum.“


Andri Snær Magnason

Mynd: Christopher Lund

– Fylgjendur á Facebook: 8.527
– Fylgi skv. nýjustu könnun: 7,8%

„Það er auðvitað þak en við erum ekkert að fara að rekast í það. Við erum að stóla á framlög frá fólki sem hefur gengið mjög vel. Margt smátt gerir eitt stórt er okkar mottó. Hingað til hefur kosningabaráttan ekki verið dýr hjá okkur, en þetta telur allt,“ segir Katrín Bessadóttir, fjölmiðlafulltrúi framboðs Andra Snæs Magnasonar. Hún segir að engar áætlanir hafi verið gerðar um hversu miklum peningum verði varið í kosningabaráttuna, enda muni kostnaður framboðsins ráðast af þeim fjárframlögum sem berist.

„Við erum enn að þiggja framlög og verðum mjög glöð þegar þau berast, sem hefur verið að gerast jafnt og þétt. Það kostar allt og það er ekki hægt að gera þetta án framlaga sem við treystum á. Þetta hafa meira verið lítil framlög frá mörgum. Hámarkið sem hver og einn getur gefið er 400 þúsund og það hafa einhverjir gefið það.“

Sömuleiðis mun gangur mála í fjáröflun ráða því hvernig auglýsingamálum verði háttað. Katrín á von á því að það verði samspil hefðbundinna auglýsinga og síðan máttar Facebook og netsins.

„Við ætlum að nýta okkur netið í miklu meira mæli en gert hefur verið hingað til í kosningabaráttu. Netið er risastór miðill sem hægt er að nýta skynsamlega og við erum með samfélagsmiðlateymi sem er að finna út úr því hvernig best sé að nýta samfélagsmiðlana. Það eru ákveðin fræði á bak við það sem við ætlum að nýta okkur. Ekki bara í okkar þágu heldur líka í þágu kjósenda svo þeir geti verið upplýstir um framboð Andra. Við erum um þessar mundir að fara yfir þessa taktík og þessi auglýsingamál.“


Halla Tómasdóttir

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

– Fylgjendur á Facebook: 3.437
– Fylgi skv. nýjustu könnun: 1,5%

„Við gerðum að sjálfsögðu kostnaðaráætlun en þar vegur auglýsingahlutinn þyngst, en við erum lítið sem ekkert byrjuð að auglýsa. Við erum búin að fjármagna grunnvinnuna sem er búin að vera í gangi núna síðustu vikur. Við erum heilt yfir að reyna að vera rosalega praktísk í öllu sem við gerum,“ segir Vigdís Jóhannsdóttir, kosningastjóri Höllu Tómasdóttur. Hún segir að fjáröflun framboðsins hafi gengið ágætlega framan af en viðurkennir að sviptingar í framboðsmálum hafi haft áhrif á.

„Þetta er auðvitað áskorun en við erum búin að fjármagna grunninn og þiggjum alla þá aðstoð sem við getum fengið. Við erum mjög ákveðin í að fara að lögum og settum reglum um hámark og að vera gagnsæ í öllu því sem kemur inn. Við erum að vanda okkur mikið og fylgja þeim gildum sem Halla stendur fyrir.“

Framboð Höllu hefur verið virkt á Facebook og verið með ýmsar skemmtilegar nýjungar. M.a. beinar útsendingar þar sem hún svarar spurningum og á samtal við kjósendur.

„Núna erum við að nota samfélagsmiðlana mikið en höfum nánast ekkert auglýst enn sem komið er. Svo erum við að skipuleggja fundi og koma Höllu fyrir framan fólk svo það hafi tækifæri til að kynnast henni. Hún er tiltölulega óþekkt, nema í afmörkuðum hópi, og það hefur reynst mjög vel þegar fólk hefur fengið tækifæri til að hitta og kynnast henni. Auglýsingar fara mjög mikið eftir fjármögnuninni en það yrði aldrei fyrr en nær dregur. Við viljum frekar fá tækifæri til að komast í viðtöl, í fjölmiðla og þar sem fólk hefur tækifæri til að kynnast henni, frekar en að setja mikið í auglýsingaefni.“


Davíð Oddsson

Fylgjendur á Facebook: 3.526
Fylgi skv. nýjustu könnun: 17,4%

„Það verður gætt hófs í þessu öllu saman, en það hefur ekkert verið áætlað hversu miklu verður varið í kosningabaráttuna,“ segir Erla Gunnlaugsdóttir, fjölmiðlafulltrúi framboðs Davíðs Oddssonar. Hún segir fjáröflun hafa gengið ágætlega.

Stofnuð var stuðningsmannasíða fyrir framboð Davíðs í byrjun maí sem hefur verið mjög virk í að vekja athygli á framboðinu. Auk þess sem hann hefur verið virkur að undanförnu í ýmiss konar uppákomum á netinu, líkt og beinni útsendingu hjá Nova, og þá hefur nú verið stofnuð Instagram-síða fyrir framboðið.

„Við munum reyna að ná til allra stuðningsmanna því það eru ekki allir á Facebook og Instagram. En markmið okkar er að nýta þessar leiðir enda eru þetta alveg ótrúlegir miðlar. Svo erum við að reyna að gera þetta skemmtilegt og ná til sem flestra. En gömlu, góðu aðferðirnar eru samt enn í gildi og við munum notast við þær.

Þrátt fyrir að Davíð sé aldursforsetinn af þeim frambjóðendum sem hér er fjallað um segir Erla að hann sé opinn fyrir tækninýjungum nútímakosningabaráttunnar. Davíð er af gamla skólanum og var upp á sitt besta í pólitík löngu fyrir tíma samskiptamiðlanna sem við þekkjum í dag.

„Hann er alveg til í þetta og finnst þetta mjög skemmtilegt, eins og sést. En því verður ekkert leynt að þetta er nýr heimur fyrir honum en hann er mjög opinn fyrir þessu og hefur starfað sjálfur á fjölmiðli og áttar sig því á því hvaða þýðingu þessir samfélagsmiðlar hafa í dag. Hann er opnari fyrir þessu en við héldum kannski í upphafi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás