Eftir hádegi í dag verður í Háskólanum í Reykjavík haldið málþing um fatlaða þolendur kynferðisbrota. Málþingið stendur yfir frá klukkan 13 til 17 í stofu V101. Lagadeild og sálfræðisvið HR standa fyrir viðburðinum í samstarfi við Ákærendafélagið, Barnahús og Stígamót. Á þinginu verða kynntar fjölmargar áhugaverðar rannsóknir sem tengjast þessum viðkvæma hópi brotaþola. Hæstaréttardómarinn Benedikt Bogason verður fundarstjóri.