Samfelldur taprekstur sveitarsjóðsins frá árinu 2008
Sveitarfélagið Norðurþing var rekið með 154 milljóna króna tapi í fyrra. Meirihluti sveitarstjórnar segir niðurstöðuna sýna krefjandi rekstrarumhverfi en minnihlutinn segir hana valda miklum vonbrigðum. Sveitarsjóður Norðurþings hefur verið rekinn með tapi frá árinu 2008.
Í bókun meirihluta Sjálfstæðisflokks og V-lista, sem sveitarstjórnarfulltrúar hans lögðu fram á þriðjudag, segir að fóðra hafi þurft á liðnum árum háar skuldir með takmörkuðum rekstrartekjum. Ljóst sé að ýmsar hagræðingaraðgerðir á árinu 2015 hafi ekki skilað sér í uppgjöri ársins.
Tekið er fram að batnandi rekstrarhorfur séu innan sveitarfélagsins vegna aukinna umsvifa í samfélagi og atvinnulífi. Þá hafi komið fram vísbendingar um auknar tekjur og jákvæðari íbúðaþróun.
Minnihlutinn, fulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar, segir í annarri bókun af sama fundi það ljóst að rekstur sveitarfélagsins búi ekki til það fé í rekstri sem þurfi til að viðhalda sjálfbærni.